Sjálfstæðismenn til varnar grænum svæðum í Reykjavík

Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins:

Í úttekt OECD um húsnæðismarkaðinn á Íslandi kom fram að aðgengi Íslendinga að grænum svæðum í þéttbýli væri minnst allra OECD-ríkja. Þannig væru aðeins tæplega 3,5% þéttbýlissvæða hérlendis skilgreind sem græn svæði, en meðaltal OECD-landanna er um 17%. Þetta eru sláandi tölur og full ástæða til að staldra við.

Sem þingmaður Reykvíkinga hef ég því lagt fram fyrirspurn á Alþingi til hæstvirts umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um græn svæði í Reykjavík. Hvernig aðgengi íbúa sé í alþjóðlegum samanburði og hvort þau eigi undir högg að sækja í núverandi skipulagi Reykjavíkur, m.a. vegna stefnu um svokallaða þéttingu byggðar. Þá lýtur fyrirspurnin að því hvort ráðherrann hafi í hyggju aðgerðir til að verja græn svæði í Reykjavík fyrir ágangi borgaryfirvalda. Þessi fyrirspurn er reyndar líka vel við hæfi úr mínum ranni, því við sjálfstæðismenn höfum alltaf lagt áherslu á aðgengi borgarbúa að grænum svæðum. Græna byltingin er gamalt hugtak sem ekki er endilega víst að allir tengi við liðin kosningaloforð sjálfstæðismanna í borginni sem svo voru efnd. Það var nefnilega siður Sjálfstæðisflokksins meðan flokkurinn stýrði borginni.

Ég hef talið mig lánsama að alast upp í hverfi í Reykjavík þar sem er stutt í náttúruna og í Reykjavík eru fjölmörg stórkostleg græn svæði – Fossvogsdalurinn, Elliðaárdalurinn og Laugardalurinn svo eitthvað sé nefnt. Þessi svæði auka lífsgæði okkar og við verðum að standa vörð um þau. Maður hefur því miður fengið það á tilfinninguna að meirihlutanum í Reykjavík sé ekki eins annt um þau.

Við ættum að taka öllum hugmyndum um að ganga á græn svæði með miklum fyrirvara og vonandi verður svar hæstvirts ráðherra upplýsandi um stöðu þessara mála í Reykjavík.

Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 24. mars 2023