Getum við stjórnað fortíðinni?

Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins:

Bókin 1984 eftir George Orwell er hrollvekjandi framtíðarsaga sem kom fyrst út árið 1949. Í bókinni lýsir höfundur framtíðarsýn þar sem hið opinbera stýrir öllu, stóru og smáu – jafnvel hugsunum borgaranna. Bókin segir frá Winston Smith sem býr í London og starfar þar í skjaladeild sannleiksráðuneytisins. Starf Winstons í ráðuneytinu felst í því að endurskrifa söguleg skjöl svo þau stangist ekki á við línu Flokksins sem breytist sífellt.

„Með þessu móti var til skjalfest sönnun fyrir því, að sérhver spá Flokksins hefði verið rétt og engin frétt eða skoðun sem stangaðist á við þarfir andartaksins, fékk nokkru sinni að standa óbreytt.“ (1984)

Bók Orwells er talin vera ein áhrifamesta bók 20. aldar, en bókin á ekki minna erindi við okkur í dag en þegar hún kom út fyrir rúmum sjö áratugum síðan. Eitt meginþema bókarinnar er t.a.m. endurritun sögunnar. Mörg dæmi er um slíkt í nútímanum. Það nærtækasta er tilraun Rússa til að endurskrifa söguna , sbr. fjölmargar nýlegar ræður Pútíns og Morgunblaðsgrein rússneska sendiherrans á Íslandi í vikunni.

„Öll mannkynssagan var á við skinnhandrit, sem skafið var upp og skrifað á ný, eins oft og þurfa þótti. Um leið og fölsunin hafði verið framkvæmd, var engin leið að færa sönnur á að fölsun hefði átt sér stað.“ (1984)

En aðrar fréttir í vikunni minntu undirritaða á dystópíska framtíðarsýn Orwells, nefnilega fréttir af endurritun barnabóka Roald Dahls. Víðtækar breytingar hafa þannig verði gerðar á bókum Dahls þannig að þær eru hreinsaðar af hugmyndum og orðfæri sem gæti hugsanlega sært einn eða annan – stangast á við „þarfir andartaksins“.

Rúnar Helgi Vignisson, rithöfundur og ritlistarkennari við Háskóla Íslands, hefur varað við slíkum aðförum – „hið illa í lífinu sé til að horfast í augu við það og takast á við það, en ekki snúa sér í hina áttina og útiloka hugmyndirnar. Sú sé tilhneigingin um þessar mundir…“

Við ættum að spyrna fast við fótum þegar kemur að hvers kyns tilraunum til að endurskrifa söguna og sömuleiðis til að endurskrifa hvers kyns listræna tjáningu til samræmis við tilfinningar þeirra hópa sem háværastir, móðgunargjarnastir eða sárastir eru á hverjum tíma.

„..ef allar heimildir segðu það sama – þá yrði lygin að sagnfræði og breyttist í sannleika. „Sá, sem stjórnar fortíðinni,“ sagði eitt slagorða Flokksins, „stjórnar framtíðinni – sá, sem stjórnar nútíðinni, stjórnar fortíðinni.““ (1984)

Og hvern hefði grunað að þetta yrði raunveruleikinn á 21. öldinni– stafrænu öldinni sem átti að færa okkur frið og velsæld? Öldinni sem tók við af öld öfganna, þeirri tuttugustu. Að þá yrði hinn hrollvekjandi spádómur Orwells ljóslifandi í okkar heimshluta.

Greinin birtist fyrst á Vísi 26. febrúar 2023.