Enginn friður í Fjarðabyggð?

Ragnar Sigurðsson oddviti Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð:

Sjónarsviptir verður af Jóni Birni úr bæjarpólitíkinni í Fjarðabyggð. Fyrir áratuga starf í þágu sveitarfélagsins og framgangs þess á hann heiður skilinn og virðingu. Samstarf við Jón Björn hefur verið farsælt, þrátt fyrir að við séum ekki samherjar í pólitík höfum við oftast átt góða samvinnu.

Neikvæð orðræða á samfélagsmiðlum og athugasemdakerfi fjölmiðla er engum til góðs. Enginn sem tekur þátt í sveitarstjórnarmálum fer varhluta af því. Hef ég þar fengið minn skammt. Fráfarandi bæjarstjóri hefur borið hita og þunga í málefnum meirihlutans og umræðan hefur oft einskorðast við hann.

Eitthvað hefur borið á þeirri umræðu hér eystra síðustu daga að afsögn bæjarstjórans tengist aðför pólitískra andstæðinga hans. Því fer fjarri.

Hvað varðar skipulags- og fasteignamál í Fannardal þá er þannig mál með vexti að maður að sunnan, mér ókunnur, sendir inn erindi til bæjarstjórnar Fjarðabyggðar. Í bréfinu sem sent var á skrifstofu sveitarfélagsins og alla kjörna fulltrúa, var vakin athygli á að fráfarandi bæjarstjóri hefði ekki tilskilin leyfi og hefði ekki greitt lögbundin fasteignagjöld. Sé það rétt er öllum ljóst að það er óásættanlegt. Að veði er trúverðugleiki og traust íbúa til sveitarfélagsins.

Flestum var brugðið eftir þessa uppákomu en sú ákvörðun að hætta var alfarið hans og meirihlutans, ekki annarra. Ósanngirni er að kenna öðrum um.

Enginn bæjarfulltrúi Fjarðabyggðar hefur tjáð sig opinberlega um þetta mál. Sjálfur hef ég sem forystumaður Sjálfstæðisflokks ítrekað neitað að tjá mig um málið í fjölmiðlum þar til að það hefur fengið efnislega umfjöllun.

Því skal haldið til haga að Sjálfstæðisflokkurinn samþykkti strax ósk meirihlutans um að fresta málinu fyrir bæjarráði um eina viku. Ósanngirni hinna pólitísku andstæðinga var ekki meiri.

Öllum má vera ljóst að rekstur Fjarðabyggðar er afar þungur. Umfangsmikil mál krefjast aðkallandi úrlausna, svo sem starfsmanna- og viðhaldsmál. Hefur minnihluti bæjarstjórnar ekki þvælst fyrir í úrlausn þeirra erfiðu mála.

Ennfremur er skýrt að fulltrúar meirihluta Framsóknarflokks og Fjarðarlistans verða að stíga fram og taka pólitíska ábyrgð til að forðast enn tíðari bæjarstjóraskipti. Þriðji bæjarstjórinn á tæpum fimm árum talar sínu máli. Það þarf meiri frið í Fjarðabyggð.

Greinin birtist fyrst á visir.is 26. febrúar 2023.