Stefán Friðrik endurkjörinn formaður

Aðalfundur Málfundafélagsins Sleipnis var haldinn fimmtudagskvöldið 2. febrúar.

Stefán Friðrik Stefánsson var endurkjörinn formaður félagsins og hafði betur í formannskjöri við Ásgeir Högnason sem einnig gaf kost á sér. Stefán Friðrik hefur gegnt formennsku í Sleipni frá árinu 2011.

Í aðalstjórn voru einnig kjörin: Harpa Halldórsdóttir, Jón Orri Guðjónsson, Jón Oddgeir Guðmundsson og Ragnar Ásmundsson. Í varastjórn voru kjörnir: Karl Ágúst Gunnlaugsson, Davíð Þ. Kristjánsson og Karl Guðmundsson.

Fram kom í skýrslu stjórnar að stjórnin hefði fundað tíu sinnum á starfsárinu og félagið haldið sjö viðburði; sex fundi og vöfflukaffi 1. maí.