Opnir viðtalstímar varaformanns

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og utanríkisráðherra, mun næstu vikurnar bjóða upp á opna viðtalstíma í Valhöll.

Viðtalstímarnir verða eftirtalda daga:

  • Mánudaginn 23. janúar kl. 10:00
  • Mánudaginn 6. febrúar kl. 10:00
  • Mánudaginn 20. febrúar kl. 10:00
  • Mánudaginn 13. mars kl. 10:00

Mikilvægt er að bóka tíma með því að senda póst á ingahrefna@utn.is

Viðtalstímarnir fara fram í Valhöll, Háaleitisbraut 1, en jafnframt er hægt að óska eftir því að þeir verði símleiðis eða í gegnum fjarfundabúnað og verður eftir fremsta megni reynt að verða við því.