Enn á að slá ryki í augu fólks

Hildur Sverrisdóttir alþingismaður:

Komið hefur fram að fjármálaeftirlit Seðlabankans telur Íslandsbanka hafa brotið lög við framkvæmd útboðs Íslandsbanka síðasta vor.

Það liðu ekki margar mínútur frá þeim fréttum þar til stjórnarandstæðingar nýttu tækifærið til að þyrla upp enn meira ryki misskilnings um þetta mál. Þingmaður Samfylkingarinnar þóttist þannig greina tvískinnung í málflutningi stjórnarliða um að lög hefðu ekki verið brotin í málinu.

Ekki þarf að kynna sér málið mikið til að sjá þar er um ódýran málflutning að ræða.

Umræðan á formlegum vettvangi stjórnmálanna síðan í vor hefur snúið að þætti stjórnvalda í sölunni. Um þau atriði gerði Ríkisendurskoðun úttekt og skilaði þinginu skýrslu í nóvember. Skýrslan er enn til umfjöllunar í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd en það hefur ekki farið framhjá þeim sem hafa fylgst með málinu að samkvæmt orðum ríkisendurskoðanda benti ekkert til lögbrota af hálfu þeirra sem til skoðunar voru á vettvangi embættisins. Ummæli stjórnarliða um að lög hafi ekki verið brotin beinast að sjálfsögðu að þessu, og ódýrt að ýja að öðru. Fjármálaeftirlit Seðlabankans tók í framhaldinu til athugunar aðgerðir ráðgjafanna sem fengnir voru til framkvæmdar útboðsins. Þeir aðilar bera eðli málsins samkvæmt sjálfir ábyrgð á framgöngu sinni, og eðlilegt að því fylgi afleiðingar hafi hún ekki staðist lög.

Í þegar flóknu máli er aumt að fylgjast með fulltrúum stjórnarandstöðunnar grípa enn og aftur í málflutningstakta sem virðast ganga út á það eitt að slá ryki í augu fólks. Allt frá því í vor hafa gífuryrði yfirtekið alla skynsama umræðu um málið og það voru nánast áþreifanleg vonbrigði margra stjórnarandstöðuþingmanna þegar skýrsla Ríkisendurskoðunar var ekki dramatískari en þau höfðu gert sér vonir um. Og nú á að freista þess að ýja að því að það sem er til umfjöllunar á milli fjármálaeftirlitsins og Íslandsbanka hafi eitthvað að gera með aðgerðir og umræðu ráðherra eða annarra stjórnarliða, þvert á hið rétta.

Einhver gæti sagt að hér sé einfaldlega um að ræða illa dulbúna rökþurrð.

Greinin birtist á visir.is 11. janúar 2023.