100 tæki 1984 – 22 tæki 2022

Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur:

 

Tugþúsundir Reykvíkinga lentu í vandræðum vegna ófærðar í desember 2022. Vandinn endurtók sig viku eftir viku .

Aðra vikuna í röð kynnast Reykvíkingar getuleysi pólitískrar yfirstjórnar borgarinnar við snjóruðning. Enn og aftur bregst hún þeirri grunnskyldu, að tryggja að götur borgarinnar séu sæmilega færar og að fólk komist til og frá heimilum sínum.

Tugþúsundir Reykvíkinga hafa lent í miklum vandræðum vegna ófærðar í húsagötum vikuna fyrir jól, á meðan götur voru almennt orðnar greiðfærar í nágrannasveitarfélögunum. Sagan endurtók sig í jólavikunni.

Starfsmenn Reykjavíkurborgar og verktaka, sem sinna snjómokstri, standa sig vel við erfiðar aðstæður. Hins vegar sannast enn og aftur að pólitísk stjórnun snjóruðnings í borginni er óviðunandi með öllu.

Nú er orðið ljóst að slæleg viðbrögð borgarinnar við snjókomunni helgina 17.-18. desember, voru ekki einstök óhappatilviljun, eins og margir vonuðu, heldur yfirveguð stefna borgarstjórnarmeirihlutans.

Of fá tæki að störfum

Kjarni málsins er að Reykjavíkurborg notast við allt of fá snjómoksturstæki miðað við stærð borgarinnar og umfang snjókomunnar. Þetta kom í ljós síðasta vekur og nú endurtekur sagan sig.

Þegar þörfin var sem mest í vikunni fyrir jól, var greint frá því að 22 snjóruðningstæki væri að störfum í Reykjavík, 20 í Hafnarfirði, 20 í Kópavogi og 10 í Garðabæ. Þessar tölur sýna metnaðarleysi borgarstjóra í málaflokknum enda er búa 56% fleiri íbúar í Reykjavík en í Hafnarfirði, Kópavogi og Garðabæ til samans. Hlutfallslega eru því langfæst snjóruðningstæki að störfum í Reykjavík.

Samanburður sýnir metnaðarleysið

Til frekari samanburðar má geta þess að árið 1984 voru um 100 tæki send út á götur Reykjavíkur til snjóruðnings þegar sambærilega snjókomu gerði. Þá var borginni stjórnað af meirihluta Sjálfstæðisflokksins.

Þrátt fyrir að mörg hverfi hafi bæst við borgina síðan 1984 og íbúum hennar fjölgað um 54%, telur núverandi borgarstjóri 22 tæki duga.

Undirritaður tók málið upp á fundi borgarstjórnar 20. desember, þremur dögum eftir að snjó kyngdi niður í borginni, og gagnrýndi þá harðlega slælega frammistöðu og lélega verkstjórn yfirstjórnar borgarinnar. Á fundinum gagnrýndi Einar Þorsteinsson, staðgengill borgarstjóra, vandann af hreinskilni og sýndi vilja til úrbóta. Góðar vonir stóðu því til að yfirstjórn Reykjavíkurborgar myndi læra af klúðrinu og standa betur að verki í þessari viku eftir mikla snjókomu á þriðja degi jóla. Þeirri snjókomu var spáð með löngum fyrirvara eins og snjókomunni viku fyrir jól.

Þær vonir brugðust. Á þriðjudag upplýsti yfirmaður vetrarþjónustu í Reykjavík að svipaður fjöldi snjóruðningstækja sinnti mokstri nú og í síðustu viku. ,,Þetta verður svipað og síðast. Tækjum hefur ekkert fjölgað. Þetta eru eitthvað um 20 tæki,“ var haft orðrétt eftir yfirmanninum.

Borgarstjóri enn í felum

Sem fyrr lætur borgarstjóri ekki ná í sig vegna málsins en vísar þess í stað á lágt setta yfirmenn eða jafnvel nefndaformenn. Afsakanir formanns umhverfis- og skipulagsráðs verða æ fjarstæðukenndari. Eftir að yfirlýsing hans, um að stýrihópur væri að endurskoða þjónustuhandbók vetrarþjónustu sló ekki í gegn, var ýjað að því að meint fákeppni í snjóruðningi væri vandinn.

Það er engin fákeppni á markaðnum með snjóruðning. Mörg hundruð vinnuvélar á Reykjavíkursvæðinu eru tiltæk í verkefnið en einungis um 20 þeirra að störfum í höfuðborginni.

En auðvitað er það borgarstjóri ásamt pólitískum meirihluta borgarstjóranr sem ber höfuðábyrgð á skipulagsklúðrinu og lélegri verkstjórn í málaflokknum.

Greinin birtist í Morgunblaðinu 29. desember 2022.