Ísland með besta lífeyriskerfið

Íslenska lífeyriskerfið var í fyrsta sæti í alþjóðlegri lífeyrisvísitölu Mercer- CFA Institute annað árið í röð.

„Það er sannarlega ánægjulegt að fá þessa viðurkenningu annað árið í röð. Þetta er staðfesting á því að við höfum sýnt fyrirhyggju og ábyrgð í langan tíma til að tryggja afkomu fólks á efri árum. Allar þjóðir standa frammi fyrir áskorunum vegna hækkandi lífaldurs, en sterkt lífeyriskerfi er grundvöllur þess að við getum tekist á við þær breytingar. Án þess þyrfti að velta gríðarlegum byrðum á komandi kynslóðir til að standa undir skuldbindingum um lífeyri. Það er viðvarandi verkefni að bæta kerfið og þar með kjör fólks áfram á komandi árum, en niðurstaðan sýnir ótvírætt að við erum á réttri leið,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármála- og efnahagsráðherra.

Vísitalan er gefin út árlega og byggist á heildareinkunn út frá ýmsum þáttum lífeyriskerfisins. Ísland tók þátt í fyrsta sinn í mælingunni í fyrra, en í ár tóku 44 lönd í öllum heimsálfum þátt í samanburðinum. Holland og Danmörk komu fast á hæla Íslands. Í vísitölunni er litið til þriggja grunnþátta – nægjanleika kerfis, sjálfbærni og trausts. Líkt og árið 2021 hlaut Ísland hæstu einkunn í tveimur þeirra, nægjanleika kerfis og sjálfbærni þess, en mældist sjöunda hæst þegar kemur að trausti til kerfisins.

Við mat á þáttunum fæst heildareinkunn um stöðu lífeyriskerfis hvers lands fyrir sig og löndunum skipað í A til E flokk eftir einkunnagjöf. Flokkur A er skilgreindur sem fyrsta flokks lífeyriskerfi með góðan lífeyri, sjálfbærni til langs tíma og sem nýtur trausts á meðan flokkur E er skilgreindur sem mjög ófullkomið lífeyriskerfi á fyrstu stigum þróunar eða ekkert lífeyriskerfi yfir höfuð. Ísland hlaut samanlagt 84,7 stig (e. overall index value), Holland 84,6 stig og Danmörk 82 stig.