Dagana 31. ágúst og 1. september standa málefnanefndir flokksins fyrir opnum fundum í Valhöll þar sem flokksmönnum gefst tækifæri til að móta stefnu flokksins í einstaka málaflokkum í aðdraganda landsfundar.
Fundirnir eru liður í undirbúningi landsfundar sem fram fer dagana 4.-6. nóvember næstkomandi
Miðvikudagurinn 31. ágúst kl. 17:00
- Velferðarnefnd – hlekkur fyrir fjarfund hér.
- Atvinnuveganefnd – hlekkur fyrir fjarfund hér.
- Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd – hlekkur fyrir fjarfund hér.
- Utanríkismálanefnd – hlekkur fyrir fjarfund hér.
Fimmtudagurinn 1. september kl. 17:00
- Allsherjar- og menntamálanefnd – hlekkur fyrir fjarfund hér.
- Fjárlaganefnd – hlekkur fyrir fjarfund hér.
- Umhverfis- og samgöngunefnd – hlekkur fyrir fjarfund hér.
- Efnahags- og viðskiptanefnd – hlekkur fyrir fjarfund hér.
Þeir flokksmenn sem ekki hafa tök á því að sækja fundina í Valhöll munu geta tekið þátt með aðstoð fjarfundabúnaðar. Hlekkir fyrir fjarfundi eru aðgengilegir hér að ofan.
Frekari upplýsingar um fundina og málaflokka nefnda má finna á heimasíðu Sjálfstæðisflokksins, www.xd.is/malefnanefndir/
Flokksmenn eru eindregið hvattir til að mæta og taka þátt í mótun stefnu flokksins. Hér er hægt að melda sig á fundina á Facebook.