Nanna Kristín Tryggvadóttir nýr formaður LS

Nanna Kristín Tryggvadóttir var kjörinn nýr formaður á aðalfundi Landssambands Sjálfstæðiskvenna sem haldin var 23. júní sl. Nanna tekur við af Völu Pálsdóttur sem gengt hefur formennsku frá árinu 2017. Á aðalfundinum var jafnframt kjörin ný stjórn og varastjórn.

Nanna Kristín hefur víðtæka reynslu úr atvinnulífinu. Hún er framkvæmdastjóri Húsheildar ehf. og Byggingarfélagsins Hyrnu. Þá starfaði Nanna um árabil hjá Landsbankanum, lengst af sem aðstoðarmaður bankastjóra. Þá hefur Nanna jafnframt gengt fjölda trúnaðarstarfa fyrir Sjálfstæðisflokkinn og er formaður Efnahags- og viðskiptanefndar flokksins. Nanna Kristín er með B.Sc. í rekstrarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík og lauk meistaragráðu í rekstrarverkfræði frá Duke háskóla í Norður Karólínu 2011. Þá er hún jafnframt með meistaragráðu í fjármálum fyrirtækja frá Háskólanum í Reykjavík.

„Þetta er glæsilegur hópur kvenna sem tekur hér við góðu búi og þvílíkt styrkleikamerki fyrir stjórnmálaflokk að svona öflugar konur skuli gefa kost á sér. Ég hlakka mikið til að bretta upp ermar og vinna með þeim öllum,“ sagði Nanna Kristín í ræðu sinni á aðalfundinum.

Stjórnin hefur þegar tekið til starfa og mun sitja fram að næsta aðalfundi.

Auk Nönnu Kristínar voru kjörnar í stjórn og varastjórn:

Auður B Ólafsdóttir
Áslaug Hulda Jónsdóttir
Björg Fenger
Dýrunn Skaftadóttir
Elísabet Sveinsdóttir
Emelía Ottesen
Gígja Sigríður Guðjónsdóttir
Guðbjörg Oddný Jónasdóttir
Guðrun Sigríður Ágústsdóttir
Hólmfríður Erna Kjartansdóttir
Katrín Atladóttir
Katrín Þorsteinsdóttir
Sirrý Hallgrímsdóttir
Steinunn Anna Hannesdóttir
Áslaug Jóhanna Jensdóttir
Bryndís Gunnarsdóttir
Drífa Hjartardóttir
Elsa Dóra Ísleifsdóttir
Heiða Þórðardóttir
Helga Loftsdóttir
Herdís Anna Þorvaldsdóttir
Líf Lárusdóttir
Margrét Bjarnadóttir
Sigríðru Erla Sturludóttir
Sigþrúður Ármanns
Silja Rán Arnarsdóttir
Sólveig María Árnadóttir
Sólveig Pétursdóttir