D-listinn í meirihluta á Hornafirði

Undirritaður hefur verið meirihlutasamningur D-lista sjálfstæðismanna á Hornafirði og KEX fyrir kjörtímabilið 2022-2026.

Sjálfstæðisflokkurinn fékk 3 menn kjörna í bæjarstjórn Hornafjarðar í nýliðnum kosningum og bætti við sig manni. Bæjarstjóri verður ráðinn.

  • Forseti bæjarstjórnar verður frá D-lista, 1. varaforseti bæjarstjórnar verður frá K-lista
    og 2. varaforseti bæjarstjórnar verður frá B-lista.
  • Formaður bæjarráðs verður frá K-lista, varaformaður bæjarráðs verður frá D-lista
  • Framboðin leggja fram sameiginlegan lista til að jafna skiptingu framboðanna í
    ráðum og nefndum á vegum sveitarfélagsins.

Sjá nánar málefnasamninginn hér.