D-listinn í meirihlutasamstarfi í Dalvíkurbyggð

Oddvitar D-lista Sjálfstæðisfélags Dalvíkurbyggðar og óháðra og K-lista Dalvíkurbyggðar undirrituðu í kvöld málefnasamning fyrir næstu fjögur ár í meirihluta sveitarstjórnar Dalvíkurbyggðar. Mikil bjartsýni og metnaður fyrir framtíð sveitarfélagsins sveif yfir vötnum við gerð samningsins og spenningur í mannskapnum að bretta upp ermar og hefjast handa. Við hlökkum til samstarfs við B-lista Framsóknar og félagshyggjufólks við að gera gott samfélag enn betra.

Forseti sveitarstjórnar verður Freyr Antonsson (D)

Formaður byggðarráðs verður Helgi Einarsson (K)

Formaður fræðsluráðs verður Jolanta Brandt (K)

Formaður félagsmálaráðs verður Katrín Kristinsdóttir (D)

Formaður íþrótta- og æskulýðsráðs verður Jóhann Már Kristinsson (D)

Formaður veitu- og hafnarráðs verður Haukur Arnar Gunnarsson (K)

Formaður í stjórn Dalbæjar verður Freyr Antonsson (D)

Breytingar verða gerðar á umhverfisráði og því skipt upp í skipulagsráð og umhverfis- og dreifbýlisráð.

Formaður skipulagsráðs verður Anna Kristín Guðmundsdóttir (D)

Formaður umhverfis- og dreifbýlisráðs verður Gunnar Kristinn Guðmundsson (K)

Einnig verður menningarráð endurvakið og verður formaður þess ráðs Lovísa María Sigurgeirsdóttir (K).

Leit að sveitarstjóra stendur yfir.