D- og B- listi mynda meirihluta í Múlaþingi

Oddvitar B- og D- lista í sveitarstjórn Múlaþings hafa undirritað samkomulag um myndun meirihluta fyrir komandi kjörtímabil. Í samkomulaginu er kveðið á um fjölmörg áhersluatriði við stjórn og rekstur sveitarfélagsins næstu fjögur ár auk áhersluatriða í samskiptum við ríkisvaldið um uppbyggingu þjónustu við íbúa sveitarfélagsins.

Berglind Harpa Svavarsdóttir, oddviti D- lista, verður formaður byggðarráðs og Jónína Brynjólfsdóttir, oddviti B- lista, verður forseti sveitarstjórnar. Gengið verður til samninga við Björn Ingimarsson sveitarstjóra um að gegna starfinu áfram.

Lögð verður áhersla á að vinna áfram að því að byggja upp stjórnsýslu Múlaþings, með áherslu á gott samtal við íbúa í öllum byggðakjörnum, samlegð í rekstri, betri nýtingu fjármuna og bættri þjónustu við íbúa m.a. með aukinni sérhæfingu starfsfólks, áherslu á rafrænar lausnir og styttingu boðleiða. Gert er ráð fyrir að þróa áfram heimastjórnir hvers byggðarkjarna og þeim ætlað framkvæmdafé til smærri samfélagsverkefna þar sem íbúar komi beint að forgangsröðun.

Málefnasamninginn má finna hér.