Rósa Guðbjartsdóttir brýtur blað í sögu Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði með því að verða fyrsti bæjarstjóri flokksins sem heldur stöðu sinni eftir kosningar. Þá er þetta í annað sinn sem Sjálfstæðisflokkurinn er í meirihluta í bæjarstjórn þrjú kjörtímabil í röð. Slíkt gerðist áður á áttunda áratug síðustu aldar þegar Árni Grétar Finnsson leiddi flokkinn í Hafnarfirði.
Rósa mun halda embætti sínu sem bæjarstjóri til 1. janúar 2025 en þá mun Valdimar Víðisson, oddviti Framsóknarflokksins, taka við starfinu. Þangað til verður hann formaður bæjarráðs. Kristinn Andersen verður forseti bæjarstjórnar í Hafnarfirði út kjörtímabilið.
Unnið er að málefnasamningi flokkanna sem verður kynntur á næstu dögum, að því er fram kemur í sameiginlegri tilkynningu flokkanna.
Þar segir einnig að helstu verkefni nýs meirihluta verði að undirbúa þá miklu íbúafjölgun sem er framundan, stuðla að uppbyggingu íbúðarhúsnæðis og tryggja þjónustu og velferð fyrir alla aldurshópa.