Skulda­söfnun Reykja­víkur­borgar verður að linna

Kjartan Magnússon, 3. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík:

Ársreikningur Reykjavíkurborgar fyrir árið 2021 sýnir að meirihluti Samfylkingar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna hefur engin tök á fjármálum borgarinnar. Þrátt fyrir miklar tekjur og hámarksskattheimtu er reksturinn engan veginn sjálfbær og skuldirnar hækka stöðugt.

Skuldir Reykjavíkurborgar námu 407 þúsund milljónum króna um áramót og hafa þær vaxið linnulítið í aldarfjórðung. Borgarstjórn hefur því skuldsett hvern íbúa sinn um rúmar þrjár milljónir króna og hverja fjögurra manna fjölskyldu um rúmar 12 milljónir. Fjárhagsstaða borgarinnar fer ört versnandi og samkvæmt fjárhagsáætlun hennar verður haldið áfram að safna skuldum næstu árin eða samfellt til 2025.

Borg í skammarkróki skuldanna

Skuldahlutfall (skuldir á móti tekjum) er langhæst hjá Reykjavíkurborg, samanborið við nágrannasveitarfélögin og fer hratt versnandi eins og sjá má á meðfylgjandi línuriti. Hafnarfjarðarbær, sem var í afar slæmri skuldastöðu árið 2014, hefur stórbætt stöðu sína. Nú er Reykjavíkurborg komin í skammarkrók skuldanna enda stendur hún verst að vígi hvað þetta varðar.

Skuldir í dag eru skattur á morgun

Skuldahlutfall Reykjavíkurborgar fór úr 104% í 201% á nokkrum árum. Ótrúlegt er að borgarstjóri, sem ber ábyrgð á slíkri skuldasetningu, skuli halda því fram að reksturinn sé í góðu lagi. Þar að auki kemur borgarstjórinn stöðugt með hugmyndir að nýjum og útgjaldafrekum gæluverkefnum, sem greitt verður fyrir með frekari lántökum og/eða skattahækkunum.

Brýnasta verkefnið

Brýnasta verkefni borgarstjórnar á næsta kjörtímabili er að tryggja fjárhagslega framtíð Reykjavíkurborgar. Gæluverkefni og vanhugsaðar skýjaborgir verða að víkja fyrir raunveruleika, sem ekki verður umflúinn, og versnar óhjákvæmilega, verði honum enn einu sinni slegið á frest. Ef fjármálin eru ekki í lagi eru engin önnur máli. Það vita allir, sem hafa rekið heimili eða fyrirtæki og hið sama gildir auðvitað um sveitarfélag.

Svokölluð borgarlína er það mál sem vinstri flokkarnir í Reykjavík hafa lagt hvað mesta áherslu á í kosningabaráttunni þótt kostnaðurinn sé óþekktur og áætlanir einkennist af barnalegri bjartsýni. Eitt er þó víst: allur kostnaður vegna nýrra útgjaldaverkefna munu lenda af fullum þunga á reykvískum fjölskyldum.

Börnin borga

Borgarstjóri virðist þannig halda að hægt sé að safna skuldum endalaust og velta vandanum yfir á komandi kynslóðir, börnin okkar og barnabörn. Slík fjármálastefna er auðvitað ábyrgðarlaus en á tímum ört hækkandi vaxta á alþjóðlegum lánamörkuðum er hún beinlínis hættuleg.

Borgarstjórn getur ekki lengur vikið sér undan því að takast á við fjárhagsvandann í stað þess að afneita honum eins og núverandi borgarstjóri gerir. Til þess þarf að koma vinstri meirihlutanum frá völdum í kosningunum 14. maí. Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins hafa mikla þekkingu á fjármálum borgarinnar og eru reiðubúnir að takast á við vandann af fullri einurð. Þeim er því best treystandi til þess að stórbæta rekstur borgarinnar með sparnaði, hagræðingu og aukinni stærðarhagkvæmni. Mikilvægt er því að kjósendur, sem vilja bæta fjárhag Reykjavíkurborgar og stöðva hina hættulegu skuldasöfnun, merki X við D.

Vísir, 13. maí. 2022.