Skipulagsmál á Akureyri okkar allra

Þórhallur Jónsson, bæjarfulltrúi:

Nýtt skipulag fyrir 1000 íbúðir í vistvænu Móahverfi sem hýst getur allt að 2500 íbúa er tilbúið og
getur uppbygging hafist strax á næsta ári. Það er vinna sem skipulagsráð Akureyrarbæjar, þar sem
formennskan hefur verið í höndum Sjálfstæðisflokksins, ásamt skipulagsfulltrúa og Landslagi réðst í á
síðasta ári og er ég verulega stoltur af útkomunni. Ein af forsendum þess að hægt sé að hefja
uppbyggingu Móahverfis er framlenging Borgarbrautar sem Sjálfstæðisflokkurinn fékk samþykkta í
fjárhagsáætlun þessa árs til að hraða ferlinu svo hægt verði að hefja uppbyggingu þar árið 2023. Þá
eru nýhafnar framkvæmdir við glæsilegt Holtahverfi þar sem verða um 300 íbúðir fyrir allt að 700
íbúa. Þar af eru að minnsta kosti 60 íbúðir á vegum Búfesti ætlaðar eldri borgurum á glæsilegum
útsýnisstað í nálægð við núverandi innviði.
Nýtt miðbæjarskipulag sem samþykkt var á kjörtímabilinu hefur gert það að verkum að hafin er
uppbygging í miðbænum eftir tæpan áratug af aðgerðarleysi. Verið er að endurbyggja Skipagötu 12
og nú í maí mun hefjast bygging á nýju og glæsilegu verslunar- og íbúðarhúsnæði við Hofsbót 2 þar
sem Nætursalan stendur nú. Undirbúningur framkvæmda við uppbyggingu á BSO reitnum er komin í
gang og gert ráð fyrir að sú vinna geti hafist 2023.
Uppbygging við Austurbrú gengur vel og þar ættu að verða um 70 íbúðir tilbúnar fyrir árslok 2024
ásamt 3-4 verslunarplássum auk gistiheimilis, allt í skemmtilegum kjarna. Þá er vinna vegna
deiliskipulags við Tónatröð í ferli auk þess sem vinna við deiliskipulag á tjaldsvæðisreitnum við
Þingvallastræti er að hefjast. Þar er mjög fínn þéttingarreitur og viðbúið að margir séu spenntir fyrir
þeirri uppbyggingu enda stutt þaðan í alla þjónustu. Sjálfstæðisflokkurinn mun beita sér fyrir því að
farið verði í hugmyndasamkeppni um það hvernig við nýtum best landsvæðið þar sem
Akureyrarvöllur stendur nú og stefnum við að því að auglýsa það í haust með það að markmiði að
uppbygging geti hafist 2024-2025.
Á nýju kjörtímabili þarf að taka upp aðalskipulag Akureyrarbæjar og koma af stað uppbyggingu á
Oddeyri ásamt því að skipuleggja framtíðar uppbyggingarsvæði í bænum þar sem íbúum Akureyrar
fjölgar hratt. Auka þarf fjármagn til skipulagsmála næstu tvö til þrjú árin með það að markmiði að
vinna okkur í haginn. Við þurfum að eiga tilbúið skipulag fyrir uppbyggingasvæði fram í tímann til að
fyrirbyggja að við lendum aftur í lóðaskorti þegar eftirspurn vex og þenslan á markaðnum er mikil.
Við sjálfstæðismenn erum tilbúin í þá vinnu með skýra sýn á framtíðaruppbyggingu fyrir Akureyri
okkar allra.

Greinin birtist fyrst á Vísi, 30. apríl 2022.