Lestrar­færni nem­enda í grunn­skólum Reykja­víkur þarf að bæta

Helgi Áss Grétarsson skipar 7. sæti og Jórunn Pála Jónasdóttir 9. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar

Í október 2020 lögðu fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn til að gerð yrði úttekt á kynbundnum mun á námsárangri í leik- og grunnskóla, með sérstakri áherslu á færni nemenda að lesa íslensku. Í framhaldinu fékk Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar tillöguna til umfjöllunar og eftir 18 mánaða málsmeðferðatíma var henni vísað frá af núverandi meirihluta borgarstjórnar á fundi ráðsins, hinn 22. mars síðastliðinn.

Þessi afgreiðsla tillögunnar sýnir svart á hvítu þá forgangsröðun sem meirihlutinn stendur fyrir. Og það þrátt fyrir að embættismenn Reykjavíkurborgar tækju undir áhyggjur af þessu málefni og bentu á að tillagan væri framkvæmanleg.

Samfélagslegt mein, bæði til skemmri og lengri tíma

Samkvæmt PISA könnun frá árinu 2018 geta 34% drengja ekki lesið sér til gagns við lok grunnskóla hér á landi á meðan sama hlutfall fyrir stúlkur er 19%. Ástæða er til að ætla að þessi staða hafi ekki farið batnandi undanfarin ár, sbr. t.d. mat tveggja reynslumikilla kennara á grunnskólastigi í viðtali á Sprengisandi á Bylgjunni hinn 10. apríl síðastliðinn. Núverandi menningarmálaráðherra, Lilja Alfreðsdóttir, lét hafa eftir sér í viðtali, sem birt var á mbl.is. hinn 15. apríl sl., „að sérstaklega slæmt gengi ungra drengja í lestri stafa af mikilli netnotkun og síaukinni einangrun ungra drengja vegna tölvuleikja og annars“.

Í fjölmiðlaviðtali í byrjun september 2020 taldi sérfræðingur á þessu sviði, prófessorinn, Hermundur Sigmundsson, að ástæða væri til að hafa verulegar áhyggjur af stöðu drengja í íslenska skólakerfinu og hann fyndi fyrir „mikilli mótstöðu ef maður er einfaldlega að benda á stöðuna“ og það væri „enginn að ræða þessi mál“.

Þöggun um svona mikilvægt samfélagslegt mein getur ekki verið til bóta.

Réttur til menntunar og fræðslu við sitt hæfi

Hafa þarf hugfast að réttur barna til menntunar og fræðslu við sitt hæfi er stjórnarskrárbundinn. Ábyrgð sveitarfélaganna er rík, því með lögum um grunnskóla hefur þessi réttur verið nánar útfærður og opinberum aðilum, meðal annars sveitarfélögum, verið falið að sinna því verkefni.

Hvort sem leið nemanda liggur að loknu grunnskólanámi til áframhaldandi bóknáms eða verknáms er það að geta lesið sér til gagns og gamans mikilvægur lykill að samfélaginu. Full þörf er á því að námsárangur drengja í grunnskólum Reykjavíkur sé tekinn til sérstakrar skoðunar og fundnar séu markvissar leiðir til að bæta árangur þeirra í grunnskólakerfinu.

Vísir, 16. apríl. 2022.