D-listi Sjálfstæðisflokksins í Árborg samþykktur

Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Sveitarfélaginu Árborg var samþykktur á fjölmennum fundi á Hótel Selfoss fimmtudaginn 31. mars.

Bragi Bjarnason deildarstjóri í frístunda- og menningardeild Sveitarfélagsins Árborg leiðir listann. Í öðru sæti er Fjóla St. Kristinsdóttir viðskiptafræðingur og ráðgjafi. Þriðja sæti listans skipar Kjartan Björnsson, rakari og bæjarfulltrúi. Fjórða sæti skipar Sveinn Ægir Birgisson, starfsmaður Vallaskóla og í fimmta sæti er Brynhildur Jónsdóttir, forstöðuþroskaþjálfi.

Fullskipaður listi Sjálfstæðisflokksins í Sveitarfélaginu Árborg er sem hér segir:

  1. Bragi Bjarnason, deildarstjóri hjá Svf. Árborg
  2. Fjóla St. Kristinsdóttir, ráðgjafi
  3. Kjartan Björnsson, rakari og bæjarfulltrúi
  4. Sveinn Ægir Birgisson, starfsmaður Vallaskóla
  5. Brynhildur Jónsdóttir, forstöðuþroskaþjálfi
  6. Helga Lind Pálsdóttir, félagsráðgjafi
  7. Þórhildur Dröfn Ingvadóttir, leikskólaliði/dagforeldri
  8. Ari Björn Thorarensen, fangavörður
  9. Guðmundur Ármann Pétursson, sjálfstætt starfandi
  10. Anna Linda Sigurðardóttir, deildarstjóri í Vallaskóla
  11. Jóhann Jónsson, framkvæmdastjóri
  12. Maria Markovic, hönnuður og kennari
  13. Björg Agnarsdóttir, bókari
  14. Gísli Rúnar Gíslason, húsasmíðanemi
  15. Ólafur Ibsen Tómasson, starfsmaður í Tengi og Brunavörnum Árnessýslu
  16. Viðar Arason, öryggisfulltrúi
  17. Olga Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri
  18. Esther Ýr Óskarsdóttir, lögfræðingur
  19. Ragna Berg Gunnarsdóttir, kennari
  20. Óskar Örn Vilbergsson, framkvæmdastjóri og slökkviliðsmaður
  21. Jón Karl Haraldsson, fyrrverandi fiskverkandi og skipstjóri
  22. Guðrún Guðbjartsdóttir, eftirlaunaþegi

Heimasíða D-listans í Árborg