Fjórtán í framboði til stjórnar Varðar

Fjórtán manns gefa kost á sér til stjórnar Varðar – fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík. Vigfús Bjarni Albertsson gefur einn kost á sér til formanns Varðar og verður hann því sjálfkjörinn á aðalfundi fulltrúaráðsins sem fram fer næstkomandi mánudag, 28. mars, kl. 17:30 í Valhöll. Kosið verður um sjö stjórnarsæti á aðalfundi.

Framboðsfrestur vegna stjórnarkjörs ran út kl. 16:00 síðastliðinn föstudag. Alls bárust 14 framboð og voru öll framboðin úrskurðuð gild.

Skrifleg kosning til stjórnar Varðar fer fram á aðalfundinum.

Eftirfarandi aðilar eru í framboði til formanns Varðar

  • Vigfús Bjarni Albertsson

Eftirfarandi aðilar eru í framboði til stjórnar Varðar

  • Andrea Sigurðardóttir
  • Einar Hjálmar Jónsson
  • Einar Sigurðsson
  • Einar Sveinn Hálfdánarson
  • Elín Jónsdóttir
  • Heimir Hannesson
  • Janus Arn Guðmundsson
  • Leifur Skúlason Kaldal
  • Nanna Kristín Tryggvadóttir
  • Rúna Malmquist
  • Sigurður Haukdal Styrmisson
  • Sigurður Helgi Birgisson
  • Viktor Ingi Lorange