Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ samþykktur

Framboðslisti sjálfstæðisflokksins í Garðabæ fyrir sveitastjórnarkosningar þann 14. maí nk. var samþykktur á fulltrúaráðsfundi í gær.

Prófkjör flokksins fór fram laugardaginn 5. mars þar sem 17 frambærilegir einstaklingar gáfu kost á sér. Tæplega 2.500 manns kusu um átta efstu sætin. Það kom svo í hlut kjörnefndar að stilla upp restinni af listanum sem nú hefur verið samþykktur.

Framboðslistinn:

  1. Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri og bæjarfulltrúi.
  2. Björg Fenger, forseti bæjarstjórnar og bæjarfulltrúi.
  3. Sigríður Hulda Jónsdóttir, framkvæmdastjóri og bæjarfulltrúi.
  4. Margrét Bjarnadóttir, matreiðslumaður og laganemi.
  5. Hrannar Bragi Eyjólfsson, lögfræðingur.
  6. Gunnar Valur Gíslason, framkvæmdastjóri og bæjarfulltrúi.
  7. Guðfinnur Sigurvinsson, aðstoðarmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins og varabæjarfulltrúi.
  8. Stella Stefánsdóttir, viðskiptafræðingur og varabæjarfulltrúi.
  9. Harpa Rós Gísladóttir, mannauðssérfræðingur.
  10. Bjarni Th. Bjarnason, rekstrarhagfræðingur og varabæjarfulltrúi.
  11. Lilja Lind Pálsdóttir, viðskipta- og hagfræðingur.
  12. Sigrún Antonsdóttir, hjúkrunarfræðingur.
  13. Eiríkur Þorbjörnsson, Msc. í öryggis- og áhættustjórnun.
  14. Inga Rós Reynisdóttir, viðskiptastjóri.
  15. Vera Rut Ragnarsdóttir, viðburðastjóri og sjúkraliði.
  16. Sveinbjörn Halldórsson, löggiltur fasteignasali.
  17. Kjartan Örn Sigurðsson, framkvæmdastjóri.
  18. María Guðjónsdóttir, lögfræðingur.
  19. Kristjana Sigursteinsdóttir, kennari.
  20. Guðjón Máni Blöndal, háskólanemi.
  21. Stefanía Magnúsdóttir, fv. formaður félags eldri borgara í Garðabæ.
  22. Gunnar Einarsson, bæjarstjóri.