D-listi Sjálfstæðisflokksins samþykktur í Rangárþingi ytra

Ingvar P. Guðbjörnsson, upplýsingafulltrúi, leiðir D-lista Sjálfstæðisflokksins í Rangárþingi ytra við sveitarstjórnarkosningar í vor. Kjörnefnd lagði fram tillögu að fullskipuðum framboðslista í gærvöldi á Hellu á fundi Sjálfstæðisfélagsins Fróða og Fjölnis, félags ungra sjálfstæðismanna, en tillagan var einróma samþykkt. Áður hafði farið fram prófkjör hjá flokknum þar sem kjörsókn var 78% og efstu sjö á listanum hlutu bindandi kosningu í prófkjörinu.

Í öðru sæti er Eydís Þ. Indriðadóttir, sveitarstjóri, í þriðja sæti er Björk Grétarsdóttir, ráðgjafi og oddviti, í fjórða sæti er Þröstur Sigurðsson, framkvæmdastjóri og í fimmta sæti er Svavar Leópold Torfason, rafvirkjameistari.

Listann í heild sinni má sjá hér:

  1. sæti Ingvar P. Guðbjörnsson, upplýsingafulltrúi
  2. sæti Eydís Þ. Indriðadóttir, sveitarstjóri
  3. sæti Björk Grétarsdóttir, ráðgjafi og oddviti
  4. sæti Þröstur Sigurðsson, framkvæmdastjóri
  5. sæti Svavar Leópold Torfason, rafvirkjameistari
  6. sæti Sóley Margeirsdóttir, grunnskólakennari og íþróttafræðingur
  7. sæti Gústav Magnús Ásbjörnsson, sviðsstjóri
  8. sæti Roman Jarymowicz, aðstoðarstöðvarstjóri
  9. sæti Sævar Jónsson, húsasmíðameistari
  10. sæti Sigríður Arndís Þórðardóttir, talmeinafræðingur og bóndi
  11. sæti Hanna Valdís Guðjónsdóttir, grunnskólakennari og bóndi
  12. sæti Lárus Jóhann Guðmundsson, tamningamaður
  13. sæti Helena Kjartansdóttir, þjónustufulltrúi
  14. sæti Anna María Kristjánsdóttir, starfsmaður í aðhlynningu og skógarbóndi