Hildur Björnsdóttir efst eftir aðrar tölur í Reykjavík

Hildur Björnsdóttir stendur efst í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík þegar talin hafa verið 3.313 atkvæði með 1.605 atkvæði. Í öðru sæti er Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir með 1.464 atkvæði í 1. – 2. sæti. Í þriðja sæti er Kjartan Magnússon með 1.185 atkvæði í 1. – 3. sæti. Í fjórða sæti er Marta Guðjónsdóttir með 1.177 atkvæði í 1. – 4. sæti. Í fimmta sæti er Björn Gíslason með 1.104 atkvæði í 1. – 5. sæti. Í sjötta sæti er Friðjón R. Friðjónsson með 1.020 atkvæði í 1. – 6. sæti.

Röð efstu níu í prófkjörinu er eftirfarandi:

  1. sæti Hildur Björnsdóttir með 1.605 atkvæði
  2. sæti Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir með 1.464 atkvæði í 1. – 2. sæti
  3. sæti Kjartan Magnússon með 1.185 atkvæði í 1. – 3. sæti
  4. sæti Marta Guðjónsdóttir með 1.177 atkvæði í 1. – 4. sæti
  5. sæti Björn Gíslason með 1.104 atkvæði í 1. – 5. sæti
  6. sæti Friðjón R. Friðjónsson með 1.020 atkvæði í 1. – 6. sæti
  7. sæti Helgi Áss Grétarsson með 1.220 atkvæði í 1. – 7. sæti
  8. sæti Valgerður Sigurðardóttir með 1.326 atkvæði í 1. – 8. sæti
  9. sæti Jórunn Pála Jónasdóttir með 1.470 atkvæði í 1. – 9. sæti

Nánari upplýsingar um sundurliðun atkvæða má finna hér.