Þátttaka í prófkjörum Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ og Hafnarfirði er gríðarlega góð. Rúmlega 2.000 höfðu greitt atkvæði í prófkjörinu í Garðabæ kl. 17:30 og um 1.200 í Hafnarfirði. Stefnir því í metþátttöku í prófkjörinu í Garðabæ.
Áætlað er að úrslit liggi fyrir í báðum prófkjörunum milli kl. 20:30 og 21:30 í kvöld og verða þau kynnt á Facebook síðum félaganna.
- Síða Garðabæjar er hér.
- Síða Hafnarfjarðar er hér.