Gestur Þór Kristjánsson áfram oddviti D-listans í Svf. Ölfusi

Gestur Þór Kristjánsson forseti bæjarstjórnr leiðir D-lista Sjálfstæðisflokksins í Sveitarfélaginu Ölfusi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar líkt og fyrir fjórum árum. Listinn var samþykktur nýlega á félagsfundi Sjálfstæðisfélagsins Ægis. Í öðru sæti listans er Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir bóndi og viðskiptafræðingur. Grétar Ingi Erlendsson bæjarfulltrúi skipar þriðja sætið og í fjórða sæti listans er Erla Sif Markúsdóttir grunnskólakennari. Sigurbjörg Jenný og Erla Sif eru nýjar inn á listann. Bæjarstjóraefni flokksins er Elliði Vignisson núverandi bæjarstjóri.

Á listanum er fjölbreyttur hópur fólks með víðtæka þekkingu og reynslu úr ólíkum áttum. Mikil endurnýjun er á listanum en einnig er þar að finna reynslumikla einstaklinga á sviði sveitarstjórnarmála sem hafa komið að ábyrgri stjórnun þess seinustu árin.

Framboðslistinn í heild sinni er sem hér segir:

  1. Gestur Þór Kristjánsson, 49 ára, húsasmíðameistari og forseti bæjarstjórnar
  2. Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir, 29 ára, bóndi og viðskiptafræðingur
  3. Grétar Ingi Erlendsson, 38 ára, sölu- og markaðsstjóri og formaður bæjarráðs
  4. Erla Sif Markúsdóttir, 33 ára, grunnskólakennari í Grunnskólanum í Þorlákshöfn
  5. Guðlaug Einarsdóttir, 45 ára, grunnskólakennari í Grunnskólanum í Þorlákshöfn
  6. Geir Höskuldsson, 31 árs, byggingaiðnfræðingur
  7. Davíð Arnar Ágústsson, 25 ára, kennaranemi og körfuknattleiksleikmaður
  8. Margrét Polly Hansen Hauksdóttir, 40 ára, hótelstjórnandi og frumkvöðull
  9. Sigríður Vilhjálmsdóttir, 38 ára, lögfræðingur og formaður fræðslunefndar
  10. Hjörtur Sigurður Ragnarsson, 33 ára, sjúkraþjálfari
  11. Bettý Grímsdóttir, 48 ára, hjúkrunarfræðingur
  12. Oskar Rybinski, 19 ára, nemi og starfsmaður í félagsmiðstöð
  13. Steinar Lúðvíksson, 38 ára, sérfræðingur hjá Landsvirkjun
  14. Anna Lúthersdóttir, 79 ára, heldri borgari

D-listinn hefur nú skipað meirihluta í hart nær fjögur ár. Undir hans stjórn hefur Sveitarfélagið Ölfus vaxið og dafnað. Velferð íbúa ásamt uppbyggingu í innviðum með áherslu á atvinnumál hafa verið í forgangi. Umfjöllun um sveitarfélagið hefur verið mikil og má með sanni segja að það hafi verið á allra vörum vegna þess krafts sem þar er að finna. Aldrei hafa verið fleiri íbúar, mikill kraftur er í byggingum bæði íbúðarhúsnæðis og iðnaðarhúsnæðis, höfnin er að stækka mikið, atvinnutækifærum að fjölga og þjónusta hefur verið aukin með áherslu á börn, fjölskyldur og eldri borgara. Íbúar vita því fyrir hvað D-listinn stendur og fái frambjóðendur til þess umboð munu þeir stíga en fastar fram í sókn fyrir samfélagið.

Á næstu vikum verður listinn kynntur nánar auk þess sem opnir málefnafundir verða haldnir þar sem öllum íbúum sveitarfélagsins gefst kostur á að koma hugmyndum sínum á framfæri.