Ragnar Sigurðsson er nýr oddviti sjálfstæðismanna í Fjarðabyggð þegar úrslit hafa verið birt úr prófkjör flokksins í dag. Hlaut Ragnar 263 atkvæði eða 75,1% gildra atkvæða í prófkjörinu. Í öðru sæti er Kristinn Þór Jónasson og í þriðja sæti er Þórdís Mjöll Benediktsdóttir. Alls kusu 354 í prófkjörinu. Kjörsókn var 55,4% og auðir og ógildir seðlar voru 4.
Röð efstu fjögurra eftir lokaniðurstöður eru svohljóðandi:
- sæti Ragnar Sigurðsson með 263 atkvæði eða 75,1%.
- sæti Kristinn Þór Jónasson með 199 atkvæði eða 56,9%.
- sæti Þórdís Mjöll Benediktsdóttir með 158 atkvæði eða 45,1%.
- sæti Jóhanna Sigfúsdóttir með 211 atkvæði eða 60,3%.