Listi Gunnars Smára Þorsteinssonar, meistaranema í lögfræði, bar sigur úr býtum í stjórnarkjöri Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, í gærkvöld.
Hátt í átta hundruð manns tóku þátt í kosningunni. Listi Gunnars Smára fékk 479 atkvæði, eða 63% greiddra atkvæða. Listi Birtu Karenar Tryggvadóttur og Kára Freys Kristinssonar, fékk 283 atkvæði, eða 37% greiddra atkvæða. Ógild atkvæði voru 29.
Auk Gunnars Smára voru á listanum:
- Brynja Kristín Magnúsdóttir
- Arent Orri Jónsson
- Halldís Hrund Guðmundsdóttir
- Alfreð Ari Chiarolanzio
- Siljá Ísberg
- Guðmundur Skarphéðinsson
- Sonja Dís Johnson Guðlaugsdóttir
- Logi Stefánsson
- Sædís Jónsdóttir
- Daníel Hjörvar Guðmundsson
- Anna Lára Orlowska
- Garðar Árni Garðarsson
- Nína Rún Óladóttir
- Gísli Garðar Bergsson
- Sigríður Birna Róbertsdóttir
- Eiður Atli Axelsson
- Margrét Björk Grétarsdóttir