Margrét Sanders efst í prófkjöri í Reykjanesbæ

Margrét Sanders oddviti sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ er efst í prófkjöri flokksins í Reykjanesbæ með 81,3% gildra atkvæða þegar lokatölur hafa verið birtar. Í öðru sæti er Guðbergur Reynisson og í þriðja sæti er Helga Jóhanna Oddsdóttir. Alls greiddu 1.352 atkvæði í prófkjörinu. Kjörsókn var 40,6%. Auðir og ógildir seðlar voru 40.

 

Röð efstu sex frambjóðenda í prófkjörinu er eftirfarandi:

  1. sæti er Margrét Sanders með 1.067 atkvæði eða 81,3%
  2. sæti er Guðbergur Reynisson með 813 atkvæði í 1. – 2. sæti eða 62%
  3. sæti er Helga Jóhanna Oddsdóttir með 497 atkvæði í 1. – 3. sæti eða 37,9%
  4. sæti er Alexander Ragnarsson með 468 atkvæði í 1. – 4. sæti eða 35,7%
  5. sæti er Birgitta Rún Birgisdóttir með 655 atkvæði í 1. – 5. sæti 49,9%
  6. sæti er Gígja Sigríður Guðjónsdóttir með 678 atkvæði í 1. – 6. sæti eða 51,7%