Reykjavíkurþing Varðar

Reykjavíkurþing Varðar, full­trúaráðs sjálf­stæðis­fé­lag­anna í Reykja­vík, fer fram í Valhöll dagana 25. og 26. febrúar 2022.

  • Bjarni Bene­dikts­son, formaður Sjálf­stæðis­flokks­ins og fjármála­ráðherra, setur Reykja­vík­urþingið kl. 17 föstudaginn 25. febrúar.

Reykja­vík­urþingið veit­ir sjálfstæðismönnum í Reykjavík tæki­færi til að koma að stefnu­mót­un Varðar í borg­ar­mál­um og eiga um leið stefnu­mót við kjörna full­trúa flokks­ins í Reykja­vík. Starfið fer að mestu fram í mál­efna­nefnd­um en auk Bjarna munu þau Guðlaug­ur Þór Þórðar­son ráðherra og odd­viti Sjálf­stæðis­flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður, Áslaug Arna Sig­ur­björns­dótt­ir ráðherra og odd­viti Sjálf­stæðis­flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður og Eyþór Arnalds odd­viti borg­ar­stjórn­ar­hóps Sjálf­stæðis­flokks­ins, flytja ávörp fyr­ir þing­full­trúa.

Um er að ræða stefnu­mót­andi mál­efnaþing þar sem mótuð verður framtíðar­sýn í fimm mis­mun­andi mála­flokk­um sem end­ur­spegla svið Reykja­vík­ur­borg­ar, þ.e. menningar-, íþrótta- og tóm­stunda­nefnd,  skóla- og frí­stunda­nefnd, um­hverf­is-, skipu­lags- og samgöngu­nefnd, vel­ferðar­-, heilbrigðis-, mannréttinda- og lýðræðisnefnd og fjár­mála- og nýsköpunar­nefnd.

Dagskrá fundarins, sjá hér.

Skráning og greiðsla á fundinn, sjá hér.