Framboð til kjörnefndar Varðar 

Auglýst er eftir framboðum til kjörnefndar Varðar – fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík 

Samkvæmt 11. gr.  reglugerðar fyrir Vörð – fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík eiga 15 manns sæti í kjörnefnd og skulu 8 kjörnefndarmenn kosnir í skriflegri kosningu af fulltrúaráðinu.  Framboð telst gilt ef það berst yfirkjörstjórn fyrir lok framboðsfrests, enda sé gerð um það skrifleg tillaga af 5 fulltrúum hið fæsta og ekki fleiri en 10 fulltrúum.  

Kjörgengir eru allir fulltrúar, sem á kjörskrá eru í Reykjavík.

Framboðum ber að skila með rafrænum hætti fyrir kl. 16:00 föstudaginn 25. febrúar. Hér er linkur fyrir skil á framboðum. 

Vilji frambjóðandi taka þátt í sameiginlegri kynningu skal hann einnig skila inn 200 orða upplýsingum um sjálfan sig ásamt mynd á rafrænu formi. 

Berist fleiri en 8 framboð til yfirkjörstjórnar Varðar – fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík innan tilgreinds framboðsfrests verður boðað til skriflegrar kosningar í Valhöll dagana 1. til 2. mars næstkomandi. 

 Yfirkjörstjórn Varðar – fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík.