Þing­maðurinn þinn?

Diljá Mist Einarsdóttir alþingismaður:

Þegar ég tók sl. vor þátt í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík fyrir alþingiskosningarnar gerði ég málefni Reykvíkinga að sérstöku umtalsefni. Ég benti á að þingmenn ættu að vinna fyrir sína umbjóðendur og ég bauð fram krafta mína í sameiginlegu prófkjöri Reykjavíkurkjördæmanna. Ég hlaut brautargengi í prófkjöri og sit nú á þingi sem sjötti þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður.

Kjördæmaskipan landsins er ætlað að jafna atkvæðavægi milli landshluta og er Íslandi skipt í sex kjördæmi. Fjöldi þingsæta í hverju kjördæmi er ákveðinn í lögum auk þess sem öðrum þingsætum en kjördæmissætum er úthlutað til jöfnunar milli stjórnmálasamtaka. Þannig eiga hver samtök að fá þingmannafjölda í sem fyllstu samræmi við heildaratkvæðatölu sína.

Ég er fædd og uppalin í Grafarvogi í Reykjavík þar sem ég bý enn og málefni Reykjavíkur þekki ég vel, bæði sem íbúi í borginni og sem varaborgarfulltrúi í borgarstjórn fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík. Ég mun því láta til mín taka á þingi um mál sem brenna á Reykvíkingum, hvort sem það eru húsnæðismál, dagvistunarmál, skólamál eða öldrunarmál. En ég er auðvitað þjóðkjörinn þingmaður á Alþingi Íslendinga og flest málefni sem koma til umfjöllunar á þingi geta varðað landsmenn óháð búsetu. Ég mun að sjálfsögðu beita mér fyrir frelsi, mannréttindum, velferð, aukinni verðmætasköpun og einstaklingsframtaki til hagsbóta fyrir alla landsmenn.

Á óvenjulegum tímum takmarkana og hafta lögum við okkur að breyttum veruleika. Undir venjulegum kringumstæðum hefði ég þegar auglýst opna viðtalstíma, en það bíður betri tíma sem verður vonandi fyrr en seinna. Á þessum örfáu vikum sem ég hef starfað sem kjörinn fulltrúi á Alþingi hafa mér borist fjölmörg erindi frá einstaklingum, fyrirtækjum, félögum og stofnunum. Ég hef gert mitt besta til að svara þeim og hvet fólk til þess að halda áfram að leita til mín.

Ég hef sömuleiðis leitast eftir tillögum að málefnum sem ættu að vera til umfjöllunar á þinginu, bæði í samtölum við fólk og á samfélagsmiðlum. Svörin og tillögurnar hafa verið fjölmargar og áhugaverðar. Ég er þakklát því að fólk gefi sér tíma til þess að svara því þetta hjálpar mér við að láta gott af mér leiða á nýjum vettvangi. Sem er sannarlega markmiðið.

Greinin birtist á facebook 25. janúar 2021.