Auglýst er eftir framboðum í Prófkjöri í Mosfellsbæ

Auglýst er eftir framboðum til prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.

Prófkjörið fer fram laugardaginn 5. febrúar 2022.

Ákveðið hefur verið að prófkjör um val frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar fari fram laugardaginn 5. febrúar 2022.

Hér með er auglýst eftir framboðum til prófkjörs. Frambjóðandi skal vera flokksbundinn sjálfstæðismaður og búsettur í Mosfellsbæ.

Frambjóðendur skulu vera kjörgengir í næstu sveitarstjórnarkosningum. Hver frambjóðandi skal skila inn skriflegum meðmælum með framboði sínu frá 20 flokksbundnum sjálfstæðismönnum búsettum í Mosfellsbæ, hið minnsta. Tekið skal fram að enginn meðmælandi má mæla með fleirum en 7 frambjóðendum.

Kjörnefnd er heimilt að tilnefna prófkjörsframbjóðendur til viðbótar frambjóðendum, eftir að framboðsfresti lýkur.

Framboðum ber að skila til Einars Páls Kjærnested, formanns kjörnefndar, (sími: 899 5159), á netfangið einar@bakkar.is, fyrir klukkan 20:00 þriðjudaginn 21. desember 2021. Einnig verður hægt að skila inn framboðum í félagsheimili Sjálfstæðisfélags Mosfellinga að Þverholti 2, 1. hæð, þriðjudaginn 21. desember 2021, á milli kl. 19:00-20:00.

Fyrir hönd kjörnefndar,
Einar Páll Kjærnested, formaður