Leggjum til uppbyggingu í skólamálum í Grafarvogi

Valgerður Sigurðardóttir borgarfulltrúi:

Í dag á fundi borgarstjórnar þá munum við Sjálfstæðismenn leggja fram tillögu þess efnis að fallið verði frá því að þrengja að vaxtarsvæði Borgarholtsskóla í nýju aðalskipulagi sem samþykkja á í dag. Um þau áform hefur skólameistari skólans Ársæll Guðmundsson tjáð sig í Fréttablaðinu, en þar segir  „Bygging hjúkrunar­heimilis á þessum stað er vægast sagt glap­ræði,“ segir Ár­sæll. Hann gagn­rýnir ekkert sam­ráð borgarinnar við íbúa Grafar­vogs né hann sem skóla­meistara Borgar­holts­skóla og segir engin svör að fá neinstaðar. Ár­sæll segist hafa hrópað eftir sam­tali í mörg ár, „ég er al­gjör­lega hundsaður.“  Þessu viljum við Sjálfstæðismenn breyta og leggjum það til í dag að fallið verði frá þessum áformum. Svæði er hjartað í Grafarvogi og það er ótrúlegt að eiga ekkert samráð við samfélagið í Grafarvogi þegar gerðar eru jafn stórar breytingar sem verða til þess að stærsti vinnustaður Grafarvogs hefur ekki lengur sömu tækifæri og áður til þess að stækka.

Korpuskóli verði opnaður á ný

Við leggjum líka til að Korpuskóli verði opnaður á ný. Sem er auðvitað hálfgerð þversögn því þó svo honum hafi verið lokað fyrir nemendum í Grafarvogi þá hefur hann verið „ opinn“ nánast alla daga frá því honum var lokað árið 2020. Því þar hafa verið börn úr öðrum skólum sem flúið hafa lekavandamála og myglu í sínum skólum. Það er algerlega galið að foreldrar keyri börnum sínum úr sínum hverfum í skóla á meðan foreldrar úr öðrum hverfum koma keyrandi með sín börn í Staðahverfið til þess að stunda sitt nám þar. Því er mikilvægt að hefja uppbyggingu íbúðarhúsnæðis á þeim reitum sem kynntir voru fyrir borgarstjórnarkosningarnar 2018 og eru staðsettir í kringum Staðahverfið í Grafarvogi. Þannig fjölgum við börnum í hverfinu og getum boðið börnum úr hverfinu að sækja skóla í sínu nærumhverfi.

Greinin birtist í Morgunblaðinu 19. október 2021.