Tveir kostir

Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins:

Þrátt fyrir að tíu flokkar séu í framboði er valið merkilega einfalt. Þú þarft ekki að taka kosningapróf til að vita að atkvæði greitt Sjálfstæðisflokknum er atkvæði greitt ábyrgð, stöðugleika og lágum sköttum. Þetta er formúlan að baki þeirri stöðugu aukningu lífsgæða sem við búum nú við.

Á hinn bóginn er hægt að velja úr fjölda flokka sem ætla að kollvarpa þessari stefnu. Boðið er upp á útblásna loforðalista sem fjármagna skal með skuldsetningu komandi kynslóða og skattahækkunum. Til verksins má mynda alls kyns fimm flokka samsetningar sem munu setja allan stöðugleika í uppnám. Valið á laugardaginn er skýrt og mun hafa bein áhrif á okkar daglega líf.

Hærri afborganir

Tugþúsundir Íslendinga njóta þess að afborganir af lánum hafa lækkað eftir endurfjármögnun. Þetta var hægt vegna þess að vextir eru lágir. Það er ekki tilviljun. Útgjaldalistinn sem nú er lofað mun hækka vextina aftur. Afborganirnar hækka með.

Minni kaupmáttur

Íslensk heimili finna að við erum á réttri leið. Það er auðveldara að láta mánaðamótin ganga upp. Fólk fær meira fyrir launin sín, skattarnir hafa lækkað og verðbólgan verið hófleg. Vörugjöldin hafa verið afnumin, verslun er frjálsari, tryggingagjaldið hefur lækkað og álögur á fyrirtæki minnkað. Þetta getur allt breyst hratt ef ný ríkisstjórn setur verðbólguna af stað aftur. Reikningurinn fyrir loforðalistana birtist okkur öllum í hærra vöruverði.

Skattahækkanir

Við höfum lækkað skatta verulega – mest á þá sem lægst hafa launin. Fyrir vikið hefur fólk meira á milli handanna og fyrirtækjum gengur betur. Nýjum störfum og tækifærum fjölgar. Við ætlum að halda áfram á sömu braut. Þetta mun breytast ef skattahækkanir á einstaklinga og fyrirtæki verða aftur lausn allra vandamála, eins og við munum frá tíð síðustu vinstri stjórnar. Stjórnar sem stóð fyrir á annað hundrað skattahækkunum.

Valið er skýrt

Það er ekki hægt að senda reikninginn fyrir loforðalistunum frá sér og láta einhvern annan borga. Við þurfum öll að borga fyrir ábyrgðarleysi með hærri afborgunum um mánaðamótin, í hærri sköttum á launaseðlinum og í hærra verði á kassanum úti í búð.

Á laugardaginn veljum við milli tveggja kosta: Áframhaldandi stöðugleika eða óvissu um framtíðina.

Greinin birtist í Fréttablaðinu 23. september 2021.