Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur

Kristín Thoroddsen frambjóðandi í 7. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi:

Nú þegar einn dagur er í kjördag eru línur að skýrast og gylliboð stjórnmálaflokka flæða yfir okkur, misgáfuleg tilboð sem alls ekki er ljóst hvernig á að fjármagna. Ég öfunda ekki ungt fólk sem er í fyrsta sinn að ganga inn í kjörklefann og þarf að taka upplýsta ákvörðun um það hvað er best að kjósa. Í grunninn þá er þetta alls ekki svo flókið, þetta snýst um hægri eða vinstri stjórn. Í samtölum mínum við ungt fólk á undanförnum dögum kemur skýrt í ljós að þau vilja frelsi umfram fjötra og þau vilja halda sjálfstæði sínu, en umfram allt fá að ákveða sjálf hvað þau setja peningana sína í frekar en að greiða háa skatta og láta stjórnmálamönnum það eftir að ákveða hvert launin þeirra fara. Þar skilur að vinstri stefna og hægri stefna.

Ég treysti ungu fólki vel, ég treysti því að þau taki upplýsta ákvörðun um að kjósa þann flokk sem stendur með frelsi þeirra til athafna. Stefna Sjálfstæðisflokksins er alveg skýr, hún stendur með þeim sem kjósa frelsið, hún stendur með þeim sem vilja sjálfir ráðstafa launum sínum og treystir fólki fyrir sínum eigin launum í stað þess að vilja skattleggja þau og þannig lækka ráðstöfunartekjur þeirra um hver mánaðarmót.

Bjóðum ekki komandi kynslóðum í óvissuferð á okkar kostnað

Það er okkar ábyrgð sem erum að ala upp börn að kjósa frelsið fyrir börnin okkar, það er á ábyrgð okkar að kjósa ekki yfir okkur stjórnmálaflokka sem vilja skuldsetja framtíð barna okkar einungis til að fjármagna loforð sín. Hugmyndafræði vinstri manna er kannski ekki röng í eðli sínu en hún á bara alls ekki við í nútíma samfélagi þar sem fólk vill frelsi. Frelsið er ekki sjálfgefið heldur eru það forréttindi, það þekkja þeir sem eldri eru og það þekkja þeir sem búið hafa við þær aðstæður þar sem stjórnmálamenn hafa svo mikil völd að framþróun eða nýsköpun getur ekki átt sér stað. Auðvitað kýs hver fyrir sig en það er á ábyrgð okkar sem eldri erum að huga að þeim sem erfa eiga land okkar. Seljum ekki atkvæði okkar það dýrt að yngri kynslóðir sitji uppi með reikninginn heldur stöndum með vilja þeirra um frelsi og tækifæri til framtíðar. Bjóðum ekki komandi kynslóðum í óvissuferð á okkar kostnað þar sem áfangastaðurinn er óljós og algerlega vonlaust að vita hver mun stýra þeirri ferð.

Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur segir máltakið og ef einhverntíma það hefur átt við þá er það í dag. Meirihluti landsmanna vill áframhaldandi samstarf ríkisstjórnaflokkanna en atkvæði greitt vinstri flokk kemur í veg fyrir slíkt áframhald. Farsælast er því að kjósa Sjálfstæðisflokkinn og tryggja þannig hægristjórn næstu fjögur árin. Ekki bjóða þér né fjölskyldu þinni í fjögra ára óvissuferð, veldu öruggan áfangastað, veldu XD

Greinin birtist á visir.is 24. september 2021.