Af hverju ætti ungt fólk að kjósa Sjálf­stæðis­flokkinn?

Ingveldur Anna Sigurðardóttir frambjóðandi í 5. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi:

Ég er 24 ára og hef kosið Sjálfstæðisflokkinn síðan ég fékk kosningarrétt og af hverju geri ég það?

Þegar ég varð átján ára stóð ég frammi fyrir því að kjósa í fyrsta sinn. Ég settist niður og gerði excel skjal með því sem mér fannst jákvætt og neikvætt við stefnu flokkanna, sem þá voru í framboði, og komst þá að því mér til mikillar ánægju að ég var Sjálfstæðiskona. Ég vil að konur séu jafnar körlum og geti sótt fram til jafns við þá, hvort sem er í atvinnulífi eða annars staðar. Ég hef því sett X við D síðan og aldrei séð eftir því.

Þegar ég horfi til minnar framtíðar þá vil ég búa í samfélagi þar sem hver og einn á jafna möguleika til að koma sér áfram í lífinu. Þá sérstaklega að menn geta framkvæmt sínar hugmyndir og skapað verðmæti. Þá verðum við að hafa sterkt menntakerfi sem fylgir þörfum atvinnulífsins en stendur ekki í stað í áratugi. Með því að skapa verðmæti sköpum við störf, og eftir atvikum meirir útflutningsverðmæti. Með þessu aukum við tekjum ríkissjóðs og getum þannig styrkt velferðarkerfið. Starf stjórnmálamanna er ekki að hafa vit fyrir fólkinu í landinu. Stjórnmálamenn eiga að sjá til þess að gera lífið hjá fólkinu auðveldara og haga stjórnsýslunni eftir því.

Ef niðurstaða kosninga verður sú að vinstri stjórn tekur við stjórnartaumunum þá munu verða skattahækkanir, báknið stækkar og forræðishyggjan tekur við. Kosningaloforð vinstri flokkanna fela í sér gífurleg útgjöld. Lítið er búið að hugsa til enda hvernig á að fjármagna þau en það verður bara gert með því að sækja í buddu landsmanna. En eiga ekki hin ríku að borga? Nei, í reynd ekki. Kosningaloforð eins og stóreignaskattur mun leiða til þess að fjármagn fer úr landi sem annars hefði farið í nýsköpun, menningu og verðmætasköpun hér heima. Það er staðreynd.

Ungt fólk á að láta sig málin varða og hugsa hlutina til enda, Hvaða möguleika viljum við hafa næstu árin? Hvernig viltu sjá framtíðina? Viltu hafa það frelsi að nýta tækifærin sem eru endalaus hérna á landi eða viltu skattahækkanir, forræðishyggju og aukin ríkisumsvif? Þitt er valið.

Taktu upplýsta ákvörðun og mættu á kjörstað. Ég mæli með X við D.

Greinin birtist á visir.is 24. september 2021.