Um­hverfis­mál eru STÓRA málið

Bryndís Haraldsdóttir alþingismaður:

Það að sporna við loftslagsbreytingum er eitt brýnasta verkefni stjórnmálanna og það kallar auðvitað á alþjóðlegt samstarf, enda er loftslagsváin áskorun án landamæra. En það er ekki nóg að sporna við loftslagsbreytingum því við þurfum líka að búa okkur undir þær breytingar sem hafa orðið og munu verða. Innviðir okkar þurfa að þola aukið álag með miklum og örum veðurbreytingum. Með minnkun sífrera aukast t.d. líkur á aurflóðum og þurfa vegir, raflagnir og aðrar veitur að þola aukið álag. En í ógnunum eins og loftslagsvá felast líka tækifæri og þau þarf að nýta.

Orkuskipti okkar stærsta framlag

Stefna Sjálfstæðisflokksins er að Ísland verði fyrst allra landa til að hætta notkun jarðefnaeldsneytis. Það er ekki bara skynsamlegt út frá umhverfissjónarmiðum en það er líka skynsamlegt út frá efnahag og samkeppnishæfni landsins. Þegar við hættum að flytja inn olíu fyrir 100 milljarða á ári þarf endurnýjanlega orku í staðinn. Raforkuna þarf því að framleiða og í þessu felast mörg tækifæri sem Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að grípa og móta framtíð þar sem endurnýjanleg orka er nýtt, okkur og umhverfinu til heilla.

Stefnt er að því að þingsályktun um orkuskipti verði endurnýjuð næsta vetur. Þar verður vegurinn varðaður fyrir næstu skref og þau þurfa að vera metnaðarfull.

Næst á dagskrá er að halda áfram með orkuskipti í bifreiðum og hefja samhliða orkuskipti á hafi fyrir alvöru.

Virkjum hugvitið

Líklegast eru stærstu tækifærin þó fólgin í hagnýtingu þekkingar og virkjun hugvits. Rannsóknir, tækniyfirfærsla og nýsköpun tengt loftagsmálum og hringrásarhagkerfinu ætti að vera okkar næsta stóriðja. Mikil tækifæri liggja í því að flytja út þekkingu á sviði grænnar orkuvinnslu og græna lausna. Þannig verður bestum árangri náð með góðu samstarfi ríkis, sveitarfélaga og atvinnulífsins. Með það að leiðarljósi var Grænvangur stofnaður en hann leiðir saman íslensk fyrirtæki og stjórnvöld til að vinna að sameiginlegu markmiði um kolefnishlutlaust Ísland 2040. Auk þess kynnir Grænvangur íslenskar grænar lausnir erlendis í samstarfi við Íslandsstofu undir merkjum Green by Iceland. Undir forystu Sjálfstæðisflokksins hafa skattalegir hvatar verið innleiddir til að ýta undir og hvetja til fjárfestinga í grænum og umhverfisvænum lausnum. Þá hefur endurgreiðsla vegna rannsóknar og þróunar verið fest í sessi og endurgreiðsluhlutfallið hækkað til að hvetja til nýsköpunar. Þær aðgerðir hafa þegar skilað miklum árangri og sjáum við nú að hugverksiðnaðurinn er orðin fjórða stoðin í íslensku efnahagslífi.

Þarna liggja tækifærin og þau viljum við Sjálfstæðismenn nýta og virkja.

Greinin birtist á visir.is 15. september 2021.