Hvar viljum við búa? Hvar vilja börnin okkar búa?

Bryndís Haraldsdóttir alþingismaður:

Stefna Sjálfstæðisflokksins er gömul og rótgróin en á jafn vel við í dag og árið 1929 þegar flokkurinn var stofnaður. Frjálslyndi í takt við skynsamlega íhaldssemi hefur tryggt þjóðinni þann árangur sem við höfum náð. Flokkurinn hefur frá stofnun verið sú stjórnmálahreyfing sem nýtur hvað mests fylgis og verið burðarás í íslensku samfélagi. Meðalfylgi flokksins í sveitastjórnarmálum hefur frá stofnun hans verið um 45% og kjörnir fulltrúar flokksins átt þátt í flestum framfaramálum á því sviði. Á þeirri tæpu öld sem liðin er frá stofnun flokksins hefur Ísland færst frá því að vera með fátækustu þjóðum Evrópu í það að vera með þeim ríkustu.

Íbúar í Suðvesturkjördæmi þekkja vel þá stefnu og þann stöðugleika sem Sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrir enda hafa kjósendur treyst flokknum fyrir stjórnun sinna sveitarfélaga um langa hríð. Sjálfstæðisflokkurinn er þannig í meirihluta bæjarstjórna allra stóru sveitarfélaganna í Kraganum. Garðbæingar, Hafnfirðingar, Kópavogsbúar, Mosfellingar og Seltjarnarnesbúar hafa þannig treyst flokknum og stefnunni fyrir stjórn mála í nærsamfélaginu, í flestum sveitarfélögunum svo áratugum skiptir.

Það skiptir máli hver stjórnar

Undir stjórn Sjálfstæðisflokksins hefur ríkissjóður haft bolmagn til að taka á móti heimsfaraldri með öflugum stuðningsaðgerðum sem tryggðu rekstrargrundvöll fyrirtækja og um leið afkomu heimilanna í landinu. Allir mælikvarðar benda til þess að aðgerðir okkar síðustu kjörtímabil og þær ákvarðanir sem teknar voru í ríkisfjármálum séu grundvöllur þeirrar viðspyrnu sem Ísland býr yfir nú þegar við búum okkur undir að vaxa út úr faraldrinum. Þetta er ekki sjálfsagt.

Tryggjum áframhaldandi ábyrga efnahagsstjórn, tryggjum lægri skatta í þágu heimila og fyrirtækja. Tryggjum rétt allra til heilbrigðisþjónustu, þjónustu sem snýst um einstaklinginn sem sækir þjónustuna en ekki um kerfið sem veitir hana. Ráðumst í uppstokkun á tryggingarkerfi öryrkja þar sem fjárhagslegt sjálfstæði þeirra er tryggt á sama tíma og hvati til atvinnuþátttöku er til staðar. Tryggjum áframhaldandi alþjóðasamstarf og alþjóðaviðskipti á okkar forsendum. Tryggjum stafræna byltingu í opinberri þjónustu, ekki síst í heilbrigðis- og velferðarmálum. Tryggjum möguleika eldra fólks til að láta að sér kveða á vinnumarkaði okkur öllum til hagsbóta. Tryggjum valfrelsi á öllum sviðum, líka í samgöngum.

Setjum X við D strax í dag og tryggjum að Ísland verði áfram land tækifæranna.

Greinin birtist á Kópavogs- og Garðapóstinum 9. september 2021.