Rafræn söfnun meðmæla stendur yfir – taktu þátt!

Söfnun meðmæla vegna framboðslista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi alþingiskosningar stendur yfir, en þær fara fram 25. september nk.

Framboð þurfa að hljóta meðmæli frá ákveðnum fjölda kjósenda í hverju kjördæmi til að geta boðið fram.  Nú er í fyrsta skipti boðið upp á að safna meðmælendum á rafrænan hátt.

Við leitum til þín um að skrifa undir meðmælendalistann í þínu kjördæmi sem og að hvetja aðra í kringum þig til að gera slíkt hið sama.

Meðmælin verða ekki birt opinberlega. Aðeins er hægt að mæla með einum lista.

Ferlið er einfalt:

  1. Veldu þitt kjördæmi hér að neðan
  2. Skráðu þig inn með rafrænum skilrikjum
  3. Veittu listanum meðmæli

 Nánari upplýsingar:

Framboðslista Sjálfstæðisflokksins í öllum kjördæmum má sjá hér.

Reykjavík skiptist í tvö kjördæmi, Reykjavík norður og Reykjavík suður. Skiptingin markast svona: Frá vestri til austurs skiptir Hringbraut, Miklabraut, Ártúnsbrekka og Vesturlandsvegur kjördæmunum þar til komið er að punkti á móts við Sóltorg í Grafarholti. Grafarholtshverfi skiptist áfram milli suður- og norðurkjördæmis um Kristnibraut og Gvendargeisla.