Söfnun meðmæla vegna framboðslista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi alþingiskosningar stendur yfir, en þær fara fram 25. september nk.
Framboð þurfa að hljóta meðmæli frá ákveðnum fjölda kjósenda í hverju kjördæmi til að geta boðið fram. Nú er í fyrsta skipti boðið upp á að safna meðmælendum á rafrænan hátt.
Við leitum til þín um að skrifa undir meðmælendalistann í þínu kjördæmi sem og að hvetja aðra í kringum þig til að gera slíkt hið sama.
Meðmælin verða ekki birt opinberlega. Aðeins er hægt að mæla með einum lista.
Ferlið er einfalt:
- Veldu þitt kjördæmi hér að neðan
- Skráðu þig inn með rafrænum skilrikjum
- Veittu listanum meðmæli
- Reykjavíkurkjördæmi norður, smelllið hér til að undirrita.
- Reykjavíkurkjördæmi suður, smelllið hér til að undirrita.
- Suðurkjördæmi, smelllið hér til að undirrita.
- Suðvesturkjördæmi, smelllið hér til að undirrita.
- Norðausturkjördæmi, smellið hér til að undirrita.
- Norðvesturkjördæmi, smellið hér til að undirrita.
Nánari upplýsingar:
Framboðslista Sjálfstæðisflokksins í öllum kjördæmum má sjá hér.
Reykjavík skiptist í tvö kjördæmi, Reykjavík norður og Reykjavík suður. Skiptingin markast svona: Frá vestri til austurs skiptir Hringbraut, Miklabraut, Ártúnsbrekka og Vesturlandsvegur kjördæmunum þar til komið er að punkti á móts við Sóltorg í Grafarholti. Grafarholtshverfi skiptist áfram milli suður- og norðurkjördæmis um Kristnibraut og Gvendargeisla.