Ólympíu­leikarnir og að­staða frjáls­í­þrótta­fólks í Reykja­vík

Valgerður Sigurðardóttir, borgarfulltrúi:

Mikið er frábært að lífið sé smám saman að færast í eðlilegra horf eftir að heimsfaraldurinn skall á. Við erum að byrja að lifa með þessum vágesti og feta okkur í átt að lífinu líkt og það var fyrir heimsfaraldur. Það er því einstaklega gleðilegt að Ólympíuleikarnir sem áttu að fara fram síðasta sumar gátu farið fram núna í sumar og þvílík veisla sem hefur verið að fylgjast með því frábæra íþróttafólki sem þar keppti. Áfram heldur veislan þar sem Paralympics fara fram í Tókýó núna. Alls taka sex íslenskir keppendur þátt í leikunum og eru fimm þeirra að taka þátt í sínum fyrstu leikum á ferlinum. Það er gríðarlega gaman að fylgjast með okkar fólki þar.

Gerum betur fyrir afreksfólk

Ég dáist oft að okkur Íslendingum, við skörum framúr í svo mörgu. Hvort sem það er íþróttafólkið okkar, listamenn eða vísindamenn. Við einfaldlega skörum fram úr á flestum sviðum, hvaða önnur smáþjóð getur státað af því. Það er þó ekki sjálfgefið og þessum frjóa jarðvegi þarf að hlúa að. Það má gera svo miklu betur fyrir afreksfólkið okkar sem gjarnan fjármagnar sig með mikilli vinnu og sölu á ýmsum varningi til þess að standa undir kostnaði við æfingar og keppnisferðir. Mikil og réttmæt umræða hefur skapast í kringum ólympíuleikanna vegna keppnisfólksins okkar og hvernig þau fjármagna sig, þar verður að gera betur. Stóra málið er þó annað og mun alvarlegra, það er aðstöðuleysi.

Verðum að bæta aðstöðuna í Reykjavík

Því miður er það þannig að ekki hefur allt íþróttafólk í Reykjavík aðstöðu sem hentar til æfinga. Þar verður að gera betur strax, ljóst er að við höldum ekki áfram að eignast afreksfólk nema við höfum aðstöðu sem hentar til æfinga. Nefna má að frjálsíþróttafólk hefur ekki haft hlaupabraut utandyra til að keppa á í Reykjavík í þrjú ár, vegna skemmda á Laugardalsvelli. Vellinum deilir frjálsíþróttafólk síðan með fótboltahreyfingunni og verður að víkja þegar KSÍ þarf að nýta völlinn. Bent er á að frjálsíþróttafólk eigi keppnishöll og geti því æft innandyra allan ársins hring. Ef það væri nú bara svo gott. Keppnishöllin er líka sýningarhöll og er mjög vinsæl sem slík. Þannig verður frjálsíþróttafólk að víkja úr höllinni þegar hún er bókuð. Ef skoðaðar eru bókanir fram á næsta ár þá má sjá að mikið er bókað og því getur frjálsíþróttafólk takmarkað æft þar. Það er mikilvægt að frjálsíþróttafólk fái góða aðstöðu þar sem hægt er að treysta því að hægt sé að æfa alla daga vikunnar án þess að þurfa að víkja. Aðstöðu sem hægt er að nýta til mótahalda jafnt Íslenskra sem og erlendra móta. Við verðum að gera betur fyrir frjálsíþróttafólk í Reykjavík setja metnað í uppbyggingu og tryggja það að frjálsar íþróttir muni lifa. Ef ekkert verður gert og frjálsíþróttafólk verður ekki sett í fyrsta sætið þegar kemur að æfingaaðstöðu þá munum við ekki eiga frjálsíþróttafólk mikið lengur hér í Reykjavík.