Stefnumótunarfundur formanna og flokksráðs

Stefnumótunarfundur formanna og flokksráðs fer fram laugardaginn 28. ágúst 2021. Yfirskrift fundarins er: Ísland, land tækifæranna.

Fundurinn hefst kl. 10:00 þar sem þrjár hugveitur verða starfandi fram að hádegi um heilbrigðismál, orkubyltingu og lífeyris- og örorkumál. Eftir matarhlé flytur Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, setningarræðu fundarins og í framhaldi af því mun fundurinn ræða stjórnmálaályktun og áherslur flokksins í næstu kosningum til Alþingis.

200 fyrstu fundargestirnir fá sæti í aðalsal. Aðrir fara í hliðarsali á Hótel Nordica, en fundurinn fer auk þess fram á sex öðrum stöðum á landinu, á Ísafirði, á Blönduósi, á Akureyri, á Egilsstöðum, á Höfn og í Vestmannaeyjum. Til að taka þátt í fundinum er nauðsynlegt að mæta á einhvern fyrrnefndra staða. Flokksráðs- og/eða formenn geta sótt fundinn hvar sem er á ofangreindum stöðum.

Fundargestir geta skráð sig á staðnum á fundardag.

Dagskrá:

Áætlað er að fundi verði slitið um eða upp úr kl. 16:00.

Pdf. af dagskrá má finna hér.

Almennt um fundinn

Fundarsköp fundarins má finna hér.

Í hugveitum fyrir hádegi munu fundinum skipt niður á þrjár málstofur þar heilbrigðismál, orkubylting og lífeyris- og örorkumál verða sérstaklega til umræðu, eitt umfjöllunarefni í einu.

Eftir setningu formanns verður ekki um eiginlegt málefnastarf að ræða heldur munu ályktunardrög að stjórnmálaályktun/kosningaáherslum verða lögð fyrir fundinn til umræðu og afgreiðslu. Þau eru unnin í samstarfi samræmingarnefndar og stjórna málefnanefnda út frá þeirri vinnu sem málefnanefndir hafa unnið frá síðasta landsfundi. Um er að ræða helstu stefnumál flokksins í komandi kosningum.

Bein útsending verður til hliðar á fundinum þar sem ýmsir fundarmenn verða teknir tali og fjallað verður um þau málefni sem eru til umfjöllunar á fundinum. Einungis ræðu formanns verður streymt beint af fundinum sjálfum.

Flokksfólk og sérstaklega flokksráðsmenn og formenn eru hvattir til að fara inn á Mínar síður á xd.is (hér) og uppfæra tengiliðarupplýsingar um sig til að auðvelda flokknum að eiga samskipti sig. Eins er hægt að sjá þar yfirlit yfir öll trúnaðarstörf í flokknum, þ.m.t. hvort viðkomandi eigi sæti í flokksráði.