Eðlilegt líf – Já takk

Vilhjálmur Árnason, alþingismaður:

Í þessari grein ætla ég að svara kalli Þórólfs og Víðis um að fá fleiri sjónarmið fram um hvernig við tökumst á við COVID. Við getum öll verið á svo margan hátt stolt af þeim árangri sem við höfum náð í þeirri áskorun sem heimsfaraldurinn hefur verið. Þar hefur eðlilega verið horft helst til þess hvernig verja eigi líf og heilsu fólks og tryggja að heilbrigðiskerfið standi undir áhlaupinu. Þetta hefur verið gert með því að fylgja ráðleggingum sérfræðinga. Hinn stóri þátturinn sem hefur verið lögð áhersla á er að verja efnahagslífið. Verja fyrirtækin til að heimilin geti haft tekjur og um leið að ríkiskassinn geti stutt við grunnstoðir samfélagsins. Fjölmargir hafa þurft að hlaupa hraðar og færa miklar fórnir á meðan aðrir hafa þurft að berjast við að endurheimta heilsuna eftir smit, áfall eða álag.

Nú þegar yfirgæfandi meirihluti þjóðarinnar er bólusettur, fólk þaulvant í persónulegum sóttvörnum og með þekkingu um veiruna er nauðsynlegt að kalla fleiri sérfræðinga að borðinu. Þar verður að horfa til þeirra afleiðinga sem bæði COVID-sjúkdómurinn og COVID-ráðstafanir hafa. Margir hræðast frelsisskerðingar eins og sóttkví sem setur allt í uppnám meira en að smitast. Óvissa og ófyrirsjáanleiki skapar kvíða, dregur úr endurreisn samfélagsins og trausti á aðgerðir. Ef samfélagið kemst ekki af stað, munum við ekki getað staðið undir því velferðarsamfélagi sem við þurfum til að tryggja heilsu þjóðarinnar og vinna úr þeim afleiðingum sem faraldurinn skilur eftir sig. Það getur verið heilsubrestur sem er ekki jafn sýnilegur og veiran, en mun skæðari. Það gleður mig því að heyra að minnisblað sóttvarnalæknis sé bara eitt gagn af mörgum sem ríkisstjórnin ætlar að horfa til við næstu skref. Það er nauðsynlegt að kalla sóttvarnarráð til, fleiri sérfræðinga innan úr heilbrigðiskerfinu og velferðarsamfélaginu ásamt því að efnahagslegt mat verður gert í samráði við atvinnulífið.

Við verðum að koma á eðlilegu lífi á strax, þar sem fólk fær frelsið sem það þráir og hver ber ábyrgð á sér sjálfum. Eðlilegt líf hér eftir mun innihalda COVID og því einfaldlega ekki hægt að bíða eftir að COVID lognist út af. Það er ekki hægt að láta árangur annarra þjóða stýra okkur eða láta óbólusetta skerða frelsi bólusettra. Það hlýtur að vera minni tilkostnaður að efla heilbrigðiskerfið til að takast á við álagið sem fylgir hinum nýja sjúkdómi og heimurinn mun takast á við í framtíðinni. Skimunargeta og þekking á sóttvörnum er orðin mikil og við verðum því að bera sjálf ábyrgð á því að umgangast ekki aðra séum við smituð. Svona eins og við gerum þegar við erum veik vegna annarra veirusýkinga.

Eðlilegt líf þar sem ég ber ábyrgð á sjálfum mér og hef mitt frelsi er leiðin áfram.

Greinin birtist á visir.is 22. ágúst 2021.