Landsfundi frestað – flokksráð kallað saman

Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins ákvað á fundi sínum í dag að fresta fyrirhuguðum landsfundi flokksins sem fara átti fram dagana 27. – 29. ágúst nk. um óákveðinn tíma.

Þess í stað verður flokksráð Sjálfstæðisflokksins kallað saman sömu helgi á rafrænum fundi.

Er þetta gert í ljósi stöðunnar í útbreiðslu kórónuveirufaraldursins hér á landi.

Nánari dagskrá flokksráðsfundar verður send fulltrúum á næstu dögum.

Flokksfólk og sérstaklega flokksráðsmenn eru hvattir til að fara inn á Mínar síður á xd.is (hér) og uppfæra tengiliðarupplýsingar um sig til að auðvelda flokknum að eiga samskipti við flokksfólk.