Framboðslisti í Suðvesturkjördæmi samþykktur

Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi var samþykktur á fundi kjördæmisráðsins í Suðvesturkjördæmi í Valhöll þann 8. júlí 2021.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra, leiðir listann. Í öðru sæti er Jón Gunnarsson, ritari Sjálfstæðisflokksins og alþingismaður. Í þriðja sæti er Bryndís Haraldsdóttir, alþingismaður. Í fjórða sæti er Óli Björn Kárason, alþingismaður. Í fimmta sæti er Arnar Þór Jónsson, héraðsdómari. Í sjötta sæti er Sigþrúður Ármann, framkvæmdastjóri. Í sjöunda sæti er Kristín María Thoroddsen, bæjarfulltrúi. Laufey Jóhannsdóttir, formaður Félags eldri borgara í Garðabæ (FEBG), skipar heiðurssæti listans.

Listann í heild má sjá hér að neðan.

1 Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra
2 Jón Gunnarsson alþingismaður
3 Bryndís Haraldsdóttir alþingismaður
4 Óli Björn Kárason alþingismaður
5 Arnar Þór Jónsson héraðsdómari
6 Sigþrúður Ármann framkvæmdastjóri
7 Kristín María Thoroddsen bæjarfulltrúi
8 Guðbjörg Oddný Jónasdóttir samskiptastjóri
9 Bergur Þorri Benjamínsson formaður Sjálfsbjargar
10 Hannes Þórður Þorvaldsson lyfjafræðingur
11 Halla Sigrún Mathiesen formaður SUS
12 Gísli Eyjólfsson knattspyrnumaður og þroskaþjálfi
13 Sigríður Heimisdóttir iðnhönnuður
14  Halla Karí Hjaltested verkefnastjóri
15 Jana Katrín Knútsdóttir hjúkrunarfræðingur
16 Dragoslav Stojanovic húsvörður
17 Inga Þóra Pálsdóttir laganemi við HÍ
18 Guðfinnur Sigurvinsson stjórnsýslufræðingur
19 Guðmundur Ingi Rúnarsson lögreglumaður
20 Sólon Guðmundsson flugmaður
21 Helga Möller tónlistarmaður
22 Kristján Jónas Svavarsson stálvirkjasmíðameistari
23 Björgvin Elvar Björgvinsson málarameistari
24 Petrea Jónsdóttir fyrrverandi skrifstofustjóri
25 Ingimar Sigurðsson vátryggingaráðgjafi
26 Laufey Jóhannsdóttir Formaður FEBG