Framboðslistinn í Suðurkjördæmi

Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi var samþykktur samhljóða þann 12. júní á fjölmennum fundi Kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi.

Á annað hundrað manns tóku þátt í fundinum og var góð stemning og baráttuandi í fólki fyrir komandi þingkosningar.

Frá því prófkjör flokksins fór fram 29. maí sl. hefur kjörnefnd verið að störfum við að ganga frá heildartillögu að framboðslista. Listinn byggir á þeirri heildartillögu. Í kjörnefnd eiga sæti 21 fulltrúi.

Listinn er svohljóðandi í heild:

  1. Guðrún Hafsteinsdóttir, markaðsstjóri, Hveragerði
  2. Vilhjálmur Árnason, alþingismaður, Grindavík
  3. Ásmundur Friðriksson, alþingismaður, Reykjanesbæ
  4. Björgvin Jóhannesson, fjármálastjóri, Svf. Árborg
  5. Ingveldur Anna Sigurðardóttir, meistaranemi í lögfræði við HÍ, Eyjafjöllum
  6. Jarl Sigurgeirsson, skólastjóri Tónlistarskóla Vestmannaeyja, Vestmannaeyjum
  7. Eva Björk Harðardóttir, oddviti, Skaftárhreppi
  8. Guðbergur Reynisson, framkvæmdastjóri, Reykjanesbæ
  9. Stefanía Anna Sigurjónsdóttir, þroskaþjálfi, Höfn í Hornafirði
  10. Gígja Sigríður Guðjónsdóttir, uppeldisfræðingur, flugfreyja og matarbloggari, Reykjanesbæ
  11. Einar Jón Pálsson, stöðvarstjóri og forseti bæjarstjórnar Suðurnesjabæjar, Suðurnesjabæ
  12. Arndís Bára Ingimarsdóttir, lögfræðingur, Vestmannaeyjum
  13. Grétar Ingi Erlendsson, markaðs- og sölustjóri og bæjarfulltrúi í Svf. Ölfusi, Þorlákshöfn
  14. Birgitta Hrund Ramsay Káradóttir, skjalastjóri og bæjarfulltrúi, Grindavík
  15. Sveinn Ægir Birgisson, kennaranemi og varabæjarfulltrúi í Svf. Árborg, Selfossi
  16. Hulda Gústafsdóttir, hestakona og framkvæmdastjóri Hestvits ehf. Rangárþingi ytra
  17. Baldur Þórir Guðmundsson, viðskiptafræðingur, Keflavík
  18. Jónas Logi Ómarsson, matreiðslumeistari og yfirbryti á Herjólfi, Vestmannaeyjum
  19. Alda Agnes Gylfadóttir, framkvæmdastjóri Einhamars Seafood, Grindavík
  20. Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, Rangárþingi eystra