Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi hefst í dag. 

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi hefst í dag.  Jafnframt verður kosið á laugardaginn kemur, 19. júní

Kjörstaðir eru víða um kjördæmið og má sjá þá og opnunartíma þeirra hér.

Þeir sem verða utan kjördæmisins á laugardag eru hvattir til að kjósa í dag.

Hægt er að kjósa utankjörfundar í dag og á föstudag frá 10-16 í Valhöll, Háaleitisbraut 1, Reykjavík. 

Kynntu þér frambjóðendur hér.

Taktu þátt í lýðræðisveislunni og kjóstu þá sem þú vilt að skipi lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi.

Skoða má sýnishorn af kjörseðli hér.

Vakin er athygli á því að kjósa ber 4 frambjóðendur í töluröð, hvorki fleiri né færri!

Kosið skal með því að setja tölustafina 1 til 4 fyrir framan nöfn frambjóðenda. Þannig skal kjósandi setja töluna 1 fyrir framan nafn þess frambjóðanda sem hann óskar að hljóti fyrsta sætið í prófkjörinu, töluna 2 fyrir framan nafn þess sem hann vill að hljóti annað sætið í prófkjörinu, töluna 3 fyrir framan nafn þess sem hann vill að hljóti þriðja sætið í prófkjörinu og 4 fyrir framan nafn þess sem hann vill að hljóti fjórða sætið í prófkjörinu.

Yfirstrikanir gera kjörseðilinn ógildan.