Kjörstaðir opnir til 18:00 í dag

Kjörstaðir í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík opnuðu kl. 10:00 í dag og standa opnir til kl. 18:00 á síðari degi prófkjörs sem hófst í gær.

  • Opnunartími 5. júní er 10-18

Þrettán frambjóðendur taka þátt í prófkjörinu – sjá hér. Kjósa skal 6-8 frambjóðendur í töluröð, hvorki fleiri en 8 né færri en 6.

Kosið er á fimm stöðum í Reykjavík:

  • Valhöll, Háaleitisbraut 1
  • Hótel Sögu, Hagatorgi – aðalinngangur
  • Félagsheimili Sjálfstæðisfélagsins í Árbæ, Hraunbæ 102b
  • Félagsheimili Sjálfstæðisfélaganna í Breiðholti, Álfabakka 14a (Mjódd)
  • Félagsheimili Sjálfstæðisfélagsins í Grafarvogi, Hverafold 1-3 (2. hæð)

Atkvæðisrétt eiga allir félagsbundnir sjálfstæðismenn í Reykjavík. Hægt er að ganga í flokkinn rafrænt fram að lokun kjörstaða hér.