4.700 manns höfðu kosið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík kl. 13:00 í dag.
Þrettán frambjóðendur taka þátt í prófkjörinu – sjá hér. Kjósa skal 6-8 frambjóðendur í töluröð, hvorki fleiri en 8 né færri en 6.
Kjörstaðir eru opnir til kl. 18:00 í dag en hægt er að kjósa á fimm stöðum í Reykjavík:
- Valhöll, Háaleitisbraut 1
- Hótel Sögu, Hagatorgi – aðalinngangur
- Félagsheimili Sjálfstæðisfélagsins í Árbæ, Hraunbæ 102b
- Félagsheimili Sjálfstæðisfélaganna í Breiðholti, Álfabakka 14a (Mjódd)
- Félagsheimili Sjálfstæðisfélagsins í Grafarvogi, Hverafold 1-3 (2. hæð)
Atkvæðisrétt eiga allir félagsbundnir sjálfstæðismenn í Reykjavík. Hægt er að ganga í flokkinn rafrænt fram að lokun kjörstaða hér.