Fimm prófkjör framundan hjá Sjálfstæðisflokknum

Framboðsfrestur er runninn út í fjórum prófkjörum af fimm sem Sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrir í vor vegna þingkosninga í haust.

Kosið 29. maí í Suður- og Norðausturkjördæmum

Kosið er í Suður- og Norðvesturkjördæmum 29. maí nk. Í hvoru kjördæmi fyrir sig gefa níu frambjóðendur kost á sér. Hér má sjá frambjóðendur í Suðurkjördæmi. Hér má sjá frambjóðendur í Norðausturkjördæmi.

Kosið 4. og 5. júní í Reykjavík

Í Reykjavíkurkjördæmum er sem fyrr haldið sameiginlegt prófkjör og fer það fram dagana 4. og 5. júní nk. Í Reykjavík gáfu 13 frambjóðendur kost á sér – sjá hér.

Kosið 10., 11. og 12. júní í Suðvesturkjördæmi

Í Suðvesturkjördæmi rennur framboðsfrestur út þriðjudaginn 25. maí en prófkjörið fer fram dagana 10., 11. og 12. júní.

Kosið 16. og 19. júní í Norðvesturkjördæmi

Í Norðvesturkjördæmi gefa níu frambjóðendur kost á sér í prófkjöri sem fram fer dagana 16. og 19. júní nk. Sjá lista yfir frambjóðendur hér.

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar stendur yfir

Nú þegar er atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hafin í þremur kjördæmum af fimm. Kosið er m.a. í Valhöll alla virka daga frá 10-16 og á fjölda staða um land allt. En innan hvers kjördæmis er þó einungis hægt að kjósa í því prófkjöri sem þar fer fram.

Nánari upplýsingar um hvert kjördæmi fyrir sig má finna hér.