Góð saga

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármála- og efnahagsráðherra:

Við stöndum í einni dýpstu kreppu í heila öld. Síðustu mánuði hafa tugir milljarða runnið í að styðja við þúsundir ein­stak­linga og fyrir­tækja. Á sama tíma og tekjur ríkisins hafa hrunið og út­gjöld aukist höfum við lækkað skatta á fólk og fyrir­tæki, með til­heyrandi halla á ríkis­sjóði.

Þó þetta sam­spil kunni að koma spánskt fyrir sjónir er hallinn ekki tapað fé.

Í gær, rúmu ári eftir að aldan skall á, kynntum við fjár­mála­á­ætlun til næstu fimm ára. Þar birtist skýr saga til vitnis um að við­brögðin voru rétt.

Inn­lend fram­leiðsla og þjónusta gengur vel og þrátt fyrir allt sem á undan er gengið jukust ráð­stöfunar­tekjur heimilanna í fyrra. Okkur tókst það sem lagt var upp með; að standa með heimilunum og halda líf­sneistanum í fyrir­tækjum.

Auk kraftsins í ís­lensku þjóðinni má nefna tvær á­stæður þess hve vel hefur gengið. Traustur grunnur og trú­verðug á­ætlun.

Við bjuggum að skyn­semi í ríkis­rekstrinum síðustu ár og gátum brugðist við af krafti. Við lögðum fljótt upp skýra og raun­hæfa á­ætlun, sem endur­speglast meðal annars í betri lána­kjörum ís­lenska ríkisins en áður hafa sést.

Hins vegar er mikil­vægt að lán­tökur séu ekki upp­haf og endir alls, eins og sumir boða. Lán þarf að endur­greiða og vextir geta hækkað. Á­ætlunin nú gerir ráð fyrir mun minni skuld­setningu og 135 milljörðum betri af­komu ríkis­sjóðs árin 2020- 2025 en út­lit var fyrir í fyrra. Vart þarf að nefna hve miklu slíkar upp­hæðir skipta fyrir ís­lensku þjóðina.

Stærsta verk­efnið fram undan er að vinna bug á at­vinnu­leysinu. Það gengur best með öflugu at­vinnu­lífi sem getur staðið á eigin fótum. Við ætlum að tryggja fyrir­tækjum súr­efni og komast sem fyrst úr um­hverfi tak­markana og ríkis­styrkja.

Það styttist í tíma upp­byggingar og sterkara Ís­lands. Við höfum góða sögu að segja og næstu kaflar verða enn betri.

Greinin birtist á visir.is 23. mars 2021.